„Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Eiður Þór Árnason og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 8. júní 2026 22:00 Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Sýn Óvíst er hvort það takist að ljúka þingstörfum í þessari viku líkt og gert er ráð fyrir í starfsáætlun. Ekki hefur verið samið um þinglok og segir þingflokksformaður Samfylkingarinnar að það sé möguleiki þingið teygi sig yfir í næstu viku. Eldhúsdagsumræður eru fyrirhugaðar á miðvikudag.
Önnur umræða um frumvarp ríkisstjórnarinnar um stofnun sérstaks innviðafélags sem ætlað er að annast fjármögnun og uppbyggingu samgöngumannvirkja hefur farið fram á Alþingi í dag og stendur hún enn yfir þegar þessi orð eru skrifuð. Einnig stóð til að ræða samgönguáætlun og fjármálaáætlun en alls er óljóst hvort það náist í kvöld. Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, er ekki bjartsýnn á að það takist að ljúka þingstörfum í samræmi við starfsáætlun. „Þetta eru stór mál. Innviðafélagið, sem er náttúrulega algjörlega nýtt konsept og margir enn þá á mælendaskrá í sinni fyrstu ræðu sem er ekkert óeðlilegt. Ég held við séum nú komin þokkalega á veg í samgönguáætlun en fjármálaáætlun er algjörlega órædd. Það er Eldhúsdagur á miðvikudaginn og mér skilst að hann eigi að standa, þannig að það þarf nú ansi mikið að ganga upp svo þingið eigi að klárast í vikunni,“ sagði hann í fréttum Sýnar á sjöunda tímanum í kvöld. Þurfi að semja Fulltrúar stjórnarmeirihlutans og stjórnarandstöðu eru ekki búnir að semja um þinglok, að sögn Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar. „Við þingflokksformenn erum að hittast afar reglulega og erum að fara að hittast aftur hér síðar í kvöld. Við erum jú stödd í stórum málum sem hófust í umræðu í síðustu viku og hafa verið rædd vel og lengi. Mín tilfinning er nú þannig að um leið og við náum samningum þá myndi nú rakna fljótt upp en það þarf að semja svo að það gangi allt hratt og vel.“ Stefán segir stór ágreiningsmál standa eftir. „Auðvitað eru þetta mörg mál sem eru undir og misstór. Í mörgum þeirra deilum við ekki sömu sýn og eitthvað af þessum málum er mögulega hægt að gera lagfæringar á. Í öðrum erum við bara ósammála, ég meina þannig gengur þetta fyrir sig hér og svo sjáum við bara hver niðurstaðan verður. Hún kemur bara í ljós.“ Tekist var á um Evrópusambandið á þinginu í dag og þurfti forseti að biðja þingmenn um að halda ró sinni í umræðum. Gætu náð saman eftir helgi Guðmundur segir þinglok alltaf kalla á samvinnu flokkanna og fulltrúar þeirra vinni að því í sameiningu. „Það hefur gengið mjög vel í þingstörfunum í allan vetur. Við höfum verið að klára mál jafnt og þétt í gegnum allan þingveturinn og ég bind bara miklar vonir við að það muni ganga vel hérna á lokametrunum líka. Við höfum líka verið að ræða ákveðin þingmannamál sem þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt til. Ég er nú bara bjartsýnn á að við náum að semja fljótlega, hvort sem það verður fyrir eða eftir helgi, það á bara eftir að koma í ljós en við erum bara bjartsýn.“
Alþingi Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir „Svaraðu spurningunni“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakaði utanríkisráðherra um Evrópumet í mótsögn þegar til umræðu var þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB. Forseti Alþingis þurfti að biðja þingmenn að halda ró sinni í umræðum 8. júní 2026 16:24 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira
„Svaraðu spurningunni“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakaði utanríkisráðherra um Evrópumet í mótsögn þegar til umræðu var þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB. Forseti Alþingis þurfti að biðja þingmenn að halda ró sinni í umræðum 8. júní 2026 16:24