Viðskipti innlent

Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga raf­virkja

Árni Sæberg skrifar
Menn við vinnu. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Menn við vinnu. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Anton Brink

Starfsmannaleigu hefur verið gert að endurgreiða starfsmanni sínum 15 þúsund krónur sem dregnar voru af launum hans vegna meints brots á húsreglum, en starfsmaðurinn leigði herbergi af starfsmannaleigunni. Þá var starfsmannaleigunni einnig gert að endurgreiða starfsmanninum ofgreidda leigu.

Þetta var niðurstaða Kærunefndar húsamála, sem kvað upp úrskurð í málinu þann 27. maí síðastliðinn. Í úrskurðinum segir að starfsmaðurinn, sem hafi starfað sem rafvirki hjá starfsmannaleigunni, hafi krafist viðurkenningar á því að starfsmannaleigunni bæri að endurgreiða 15.000 krónur, sem hún dró af launum hans vegna „brots á húsnæðissamningi“. 

Starfsmaðurinn hefði sagst hafa átt í minni háttar orðaskaki við ofbeldisfullan leigjanda í húsinu, án þess að til handalögmála hefði komið. Starfsmannaleigan hefði sagt manninn hafa brotið húsreglur með því að raska húsfriði.

Hann hafi einnig krafist viðurkenningar á því að starfsmannaleigunni bæri að endurgreiða ofgreidda leigu, samtals að fjárhæð 95.064 krónur ásamt vöxtum.

Lögin ófrávíkjanleg

Í niðurstöðu nefndarinnar um fyrri kröfuna segir að húsaleigulög séu ófrávíkjanleg að því leyti að óheimilt sé að semja um að leigjandi íbúðarhúsnæðis taki á sig ríkari skyldur og öðlist minni réttindi en lögin mæla fyrir um nema ákvæði laganna hafi að geyma sérstök frávik þess efnis. 

Í lögunum sé hvorki kveðið á um að leigusala sé heimilt að draga fé af launagreiðslum til leigjanda sökum vanefnda hans á leigusamningi né sekta hann fyrir samningsbrot. Almenn ákvæði húsaleigulaga um umgengni leigjanda feli ekki í sér slíka heimild. 

„Verður því talið að varnaraðila hafi verið óheimilt að sekta sóknaraðila fyrir ætlað brot á áðurnefndum húsreglum.“

Hækkaði leiguna í andstöðu við lög

Hvað síðari kröfuna varðar segir í úrskurðinum að þar sem breytingar starfsmannaleigunnar á fjárhæð húsaleigunnar samkvæmt tölvubréfum í lok febrúar 2024 og lok janúar 2025 hafi verið í andstöðu við ófrávíkjanleg ákvæði húsaleigulaga verði fallist á með starfsmanninum að hann eigi rétt á endurgreiðslu á fjárhæð sem nemur mismun umsaminnar húsaleigu og þeirrar sem var dregin af launum hans frá annars vegar 1. apríl 2024 og hins vegar frá 1. mars 2025 ásamt dráttarvöxtum.

Í ljósi niðurstöðu málsins yrði ekki fallist á málskostnaðarkröfu starfsmannaleigunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×