Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar 5. júní 2026 07:45 Í kvöld var sýnd hryllileg mynd í Kastljósinu á RÚV af þeirri ofbeldisveröld sem ungmenni í vanda lifa og hrærast í. Kom þetta mér á óvart eftir að hafa starfað á þessum vettvangi í yfir 30 ár? Svarið við því er NEI. Þetta endurspeglar, ég leyfi mér að segja, þann algjöra sofandahátt sem ríkt hefur í íslensku samfélagi. Við hefðum fyrir lifandis löngu átt að vera búin að grípa inn í þessa þróun sem alið hefur af sér hreina ofbeldisdýrkun. Það á aldrei að líðast að sá hryllilegi atburður sem átti sér stað á Menningarnótt um árið, þegar ung stúlka var stungin til bana, endurtaki sig. Við megum ekki lenda í því sem gerist alltaf þegar jafn hræðilegir atburðir eiga sér stað: að við förum á innsogið í einhverja daga... og svo hvað? Svo gerist ekki neitt. Samt er þetta sá raunveruleiki sem ákveðinn hópur ungmenna býr við í dag. Því miður er það ekki spurning um hvort, heldur hvenær annar eins harmleikur á borð við Menningarnótt endurtaki sig. Það er stutt í það, hvort sem það verður framið með vopni eða með hrottalegum kýlingum og spörkum. „Eru þeir farnir að stinga hver annan?“ – Við vorum vöruð við þessu árið 1995 En var varað við þessu? Var okkur sagt að við gætum lent í þessum farvegi? Svarið við því er með stórum stöfum: JÁ! Ég hef skrifað um þetta oft áður. Árið 1995 fór ég ásamt vinnufélaga mínum til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar til að kynna mér samstarf lögreglu og útideildar (sem þá var rekin af unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur) og hvernig þar væri tekið á afbrotum ungmenna. Þar vorum við einmitt spurðir: „Eru þeir farnir að stofna klíkur? Eru þeir farnir að stinga hver annan?“ Hvert er svarið við því í dag, árið 2026? JÁ! Sérsveitin fór í tólf sinnum fleiri vopnuð útköll árið 2023 en árið 2013, eða úr 461 útkalli í 2.141. Hvað segir þessi tölfræði okkur? Er þetta bara einhver tilviljun? Sjálfur er ég orðinn dauðleiður og langþreyttur á því að standa uppi á cokekassa og garga út í tómið. Við þurfum að vakna og það núna. Það er engin einföld skýring á þessu og ekki heldur neitt einfalt svar; þetta eru ekki bara samfélagsmiðlarnir. Þetta er kerfislægt og samfélagslegt vandamál sem er viðvarandi. Það verður ekki leyst með einhverju skammvinnu sýndarmennskuátaki, heldur er þetta langtímaverkefni og viðfangsefni hvers tíma. Hundruð mála sem rata aldrei í fjölmiðla Þegar ég byrjaði í útideildinni á sínum tíma man ég eftir máli þar sem tvær stúlkur börðu eina svo hrottalega að fórnarlambið lamaðist. Núna, meira en 30 árum síðar, var stúlka barin svo svakalega og skilin eftir meðvitundarlaus. Þetta er því miður ekki einsdæmi. Þessi mál skipta tugum, ef ekki hundruðum, á síðustu þremur áratugum en þau rata bara ekki alltaf í fjölmiðla og raunar sjaldnast. En hvað ætlum við að vera blind fyrir þessu lengi? Hvað ætlum við að stofna mörg ráð og nefndir og fá marga kaffistofusérfræðinga sem eru í engri snertingu við þennan veruleika til að teikna upp einhverjar glærusýningar? Hvað með að tala við fólk sem hefur verið báðum megin við borðið og staðið í þessum eldi í áratugi? Fólk sem hefur sýnt það í verki að það getur stofnað til raunverulegrar vinnu sem snýr að ofbeldi og afbrotum í formi hópstarfs, fólk sem tekst á við viðfangsefnið í raunheimi á vettvangi, en ekki yfir skrifborðum eða með því einu að dæla í krakkana lyfjagjöfum. Við þurfum fólk sem vinnur alvöru vinnu á gólfinu samkvæmt hugmyndafræðinni „learning by doing“, en ekki fólk sem talar málin í kaf á nefndafundum. 1.700 erfiðustu málin gegn skrifstofublæti kerfisins Það er til dæmis hrópandi dæmi um þennan sofandahátt og vanhæfni kerfisins að ekki sé leitað til manns sem ég þekki mjög vel og hlýtur að teljast okkar helsti sérfræðingur á landinu, manns sem hefur starfað í yfir 30 ár í málaflokknum og meðhöndlað 821 af erfiðustu ungmennum þjóðarinnar. Sjálfur hef ég unnið við hlið hans jafnlengi og tel mig hafa mætt svipuðum fjölda í augnhæð. Saman höfum við barist fyrir nýrri nálgun, hitt ótal ráðherra, þingmenn og fangelsismálastjóra. Við sitjum yfir samtals tæplega 1.700 erfiðustu málum þessarar þjóðar en samt er frekar hlustað á skrifstofublætið á meðan við spólum í sömu hjólförunum. Það er nefnilega ekki alltaf svarið að glósa sig í gegnum háskólabækur og ætla svo að yfirfæra það beint á götuna. Til þess að skilja þennan heim raunverulega verður fólk stundum að hafa verið báðum megin við borðið og þá reynslu kennir enginn háskóli. Þetta verður að breytast strax, áður en næsta fórnarlamb liggur á götunni. Að lokum minni ég á Facebook-síðuna „hvernig fækkum við afbrotum barna“ þar er hægt að fræðast um þennan málaflokk og sjá frá hópstarfinu sem ég var með fyrir drengi í vanda hér um árið. Höfundur er starfsmaður Fjölsmiðjunnar og áhugamaður um betra samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun