Andrea býr hjá breskri fjölskyldu sem styður hana til sigurs Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. júní 2026 07:02 Andrea Bergsdóttir spilar á LET Access mótaröðinni. LET ACCESS Þegar Andrea Bergsdóttir náði sínum besta árangri á ferlinum á LET mótaröðinni fékk hún að búa hjá breskri fjölskyldu á meðan mótinu stóð. Fjölskyldan hefur nú opnað heimili sitt fyrir Andreu aftur og hún stefnir á að gera enn betur en í fyrra.
Andrea spilar á LET mótaröðinni og um helgina fer fram mót í Montaubaun í Frakklandi. Kylfingar fá að búa hjá fólki í bænum á meðan mótinu stendur. „Á síðasta ári spurðumst við bara fyrir um gestgjafa og fengum að vera þarna. Þannig að í ár ákvað ég að senda beint á þau og spyrja hvort þau gætu tekið á mótið okkur aftur, sem þau gerðu með glöðu geði,“ segir Andrea í viðtali sem birtist á heimasíðu LET. Hopkins-fjölskyldan mun því útvega Andreu fæði og húsnæði á meðan mótinu stendur, en klæði þarf hún að skaffa sjálf. Fjölskyldufaðirinn Peter og dóttir hans Poppy studdu Andreu á lokadegi mótsins í fyrra, þegar hún náði sínum besta árangri á ferlinum og hafnaði í þriðja sæti. „Að vera hluti af svona fjölskyldu er fallegt, að fá mat og stuðning frá þeim. Vonandi geta þau komið og séð mig spila eins og í fyrra, það gaf mér mikla hvatningu,“ segir Andrea og hún telur að þessar kunnuglegu aðstæður geti hjálpað henni um helgina. „Þetta hjálpar heilmikið, að þekkja staðinn, völlinn og fólkið sem ég er með. Ég er meira að segja í sama svefnherbergi og í fyrra, það er allt alveg eins.“ Andrea hefur hafnað í 29. og 42. sæti á fyrstu mótum tímabilsins en hefur trú á því að þetta verði hennar mót. „Ég er hrifinn af vellinum, það er skemmtilegt að spila hann og flatirnar hérna eru mjög góðar sem gefur mér mikið sjálfstraust. Ég yrði glöð með það setja bara niður fleiri pútt um helgina en ég hef verið að gera. Auðvitað yrði líka frábært að bæta skorið frá því í fyrra og ná hærra en þriðja sætið. Mér finnst minn leikur vera stöðugri í ár. Ég veit hvað ég er að gera hérna og er með góða tilfinningu fyrir tímabilinu sem er framundan.“
Golf Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira