Viðskipti innlent

Rauður dagur í Kaup­höllinni

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Óvissa í íslensku efnahagslífi eykst hratt.
Óvissa í íslensku efnahagslífi eykst hratt. Vísir

Kauphöllin var lengst af glóandi rauð í dag. Örfá fyrirtæki náðu þó að snúa vörn í sókn síðustu klukkustundina af opnun hennar og enduðu í grænu. Mest var hækkun Haga upp á 0,81% en viðskipti með bréf félagsins námu sextíu og þremur milljónum. Mesta lækkunin varð á bréfum Alvotech, um 4,76%, í viðskiptum upp á tæpar nítíu og fimm milljónir.

Óvissa hefur verið þema í umfjöllun Vísis um efnahagsmál síðustu daga. Nú síðast í morgun lýsti fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans yfir viðvarandi óvissu í alþjóðlegum efnahagsmálum, versnandi verðbólguhorfum og að háir vextir muni reyna á viðnámsþrótt fjármálakerfisins á komandi misserum. Þá fari húsnæðisverð lækkandi að raunvirði á sama tíma og íbúðum á sölu haldi áfram að fjölga.

Það er íslenska lyftæknifyrirtækið Oculis sem hefur leitt lækkanir á markaðnum síðustu daga. Slæmar fréttir bárust af lyfjaþróun fyrirtækisins í lok síðustu viku sem leiddu til hruns í markaðsvirði félagsins. Félagið hafði við lokun Kauphallarinnar lækkað um 57%.

Viðskiptablaðið greinir þó frá því að gengi félagsins hafi hækkað við opnun markaða vestanhafs, en félagið er einnig skráð í Bandaríkjunum.

Meðal fyrirtækja sem lækkuðu mest í dag eru fjarskiptafyrirtækin Nova Klúbburinn, um 2,23%, og Sýn, um 2,8%. Þá lækkað Icelandair um 2,62% en félagið stígur þessa dagana krappan dans þar sem olíuverð fer hækkandi og niðurfellingar brottfara tíðar vegna vélaskorts og flugmannaskorts.

Mest viðskipti voru með bréf Íslandsbanka í dag upp á alls þrjú hundruð og sextíu milljónir.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar sem stóð í 2800 stigum fyrir viku síðan hefur lækkað um tæp tíu prósent í vendingum síðustu daga, niður í 2562 stig.

Vísir er í eigu Sýnar hf.


Tengdar fréttir

Hundruðum sagt upp í maí

Vinnumálastofnun bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í maí. Alls var 370 manns sagt upp störfum.

Flug­menn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjara­samning í tví­gang

Flugmenn Air Atlanta hafa tvívegis fellt nýjan kjarasamning í atkvæðagreiðslu. Í samningnum sem felldur var síðast áttu launin að hækka samkvæmt kjarasamningsbundinni hækkun stöðugleikasamkomulags á almennum vinnumarkaði. Sú hækkun nemur um 3,5% á ári hverju yfir samningstímann.

Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst

Atvinnuleysi mælist 5,8% en var 3,3% á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi dregst saman milli mánaða en síðasta mæling Hagstofunnar var 6,3%. Atvinnuleysistölur eru birtar mánaðarlega. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×