Viðskipti innlent

Við­varandi ó­vissa, versnandi verðbólgu­horfur og háir vextir gætu reynt á

Atli Ísleifsson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm

Viðvarandi óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins á komandi misserum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans sem birt var klukkan 8:30.

Í yfirlýsingunni segir að fjármálakerfið hér á landi sé traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. 

„Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt. Viðvarandi óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins á komandi misserum. Skuldahlutföll heimila og fyrirtækja eru almennt lág og vanskil lítil. Álagspróf Seðlabanka Íslands bendir til þess að stóru bankarnir þrír geti staðið af sér verulegt áfall án þess að skerða um of framboð lánsfjár til viðskiptavina,“ segir í yfirlýsingunni.

Húsnæðisverð lækkað að raunvirði

Fram kemur að húsnæðisverð hafi lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu fjölgað og lengur taki að selja eignir, sérstaklega nýjar íbúðir. 

„Skuldir fyrirtækja í byggingastarfsemi hafa vaxið síðustu misseri og merki eru um vaxandi vanskil þótt þau séu enn tiltölulega lítil. Lánveitendur þurfa að gæta að aukinni áhættu í geiranum.

Áhætta í rekstri fjármálainnviða hefur aukist. Vaxandi netógn hefur fylgt tæknivæðingu, þróun í gervigreind og óróa á alþjóðavettvangi. Mikilvægt er að Seðlabanki Íslands, önnur stjórnvöld og aðilar á fjármálamarkaði vinni markvisst saman að því að draga úr áhættu og að treysta viðbúnað svo hægt verði að bregðast skjótt og örugglega við alvarlegum rekstraratvikum og tryggja samfellu nauðsynlegrar fjármálaþjónustu. Samhæfður viðbúnaður gegn rekstraratvikum er grundvöllur fjármálastöðugleika,“ segir í yfirlýsingunni.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika. Vísir/Vilhelm

Lausn kemur um mitt ár

Í yfirlýsingu nefndarinnar segir ennfremur að kortagreiðslur í netleysi séu þýðingarmikill þáttur í viðnámsþrótti greiðslumiðlunar. 

„Sú lausn verður innleidd um mitt ár. Fjármálastöðugleikanefnd leggur áherslu á að fjölga þurfi greiðsluleiðum með innviðum fyrir nýjar greiðslulausnir, svo sem greiðslur með millifærslum. Fjölbreytni í greiðslumiðlun eykur seiglu fjármálakerfisins og dregur úr líkum á víðtækri röskun við alvarleg rekstraratvik.

Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að eftirfarandi innviðir teljist kerfislega mikilvægir og þess eðlis að röskun á starfsemi þeirra geti haft áhrif á fjármálastöðugleika: Millibankagreiðslukerfi Seðlabankans og verðbréfauppgjörskerfi Nasdaq sem grunninnviði fjármálakerfisins og innlánakerfi Reiknistofu bankanna, greiðslukerfi Reiknistofu bankanna og rafræn auðkenning í fjármálaþjónustu hjá Auðkenni ehf. sem kjarnainnviði fjármálakerfisins.“

Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur

Fjármálastöðugleikanefnd hefur ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5 prósent í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. 

„Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti,“ segir í yfirlýsingunni. 

Vefútsending frá kynningu vegna yfirlýsingar nefndarinnar hefst klukkan 9:30. Þar munu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar, og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. 

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×