Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Stefán Árni Pálsson skrifar 2. júní 2026 14:30 Steph Curry í leik með Golden State Warriors. Ronald Martinez/Getty Images Körfuboltastjarnan Stephen Curry hefur skrifað undir samstarfssamning við kínverska íþróttavöruframleiðandann Li-Ning.
Tólf ára samstarfi hans við bandaríska fyrirtækið Under Armour lauk á síðasta ári og hefur það legið fyrir undanfarna mánuði að Curry væri að fara í annað samstarf. BBC greinir frá. Curry er einn þekktasti leikmaður NBA-deildarinnar og leikur með Golden State Warriors. Samkvæmt samningnum mun Curry vinna með Li-Ning að þróun nýrra vara auk þess að koma á fót verslanakeðju undir merkjum Curry Brand í bæði Bandaríkjunum og Kína. Fjárhæð samningsins hefur ekki verið gerð opinber en gera má ráð fyrir að um sé að ræða einn stærsta samning sögunnar hjá körfuboltamanni. Samstarfið er talið stórt skref fyrir Li-Ning í þeirri vegferð fyrirtækisins að festa sig í sessi sem alþjóðlegt vörumerki. Í myndskeiði sem Curry birti á vefsíðu sinni Thirty Ink sagði hann samstarfið munu hjálpa Li-Ning að styrkja stöðu sína á bandarískum markaði. Fyrirtækið rekur nú þegar meira en 7.000 verslanir víðs vegar um Asíu. Curry fékk 300 milljónir dollara fyrir tólf ára samning sinn við Under Armour. Samkvæmt heimildum manna vestanhafs er samnigurinn við Li-Ning til tíu ára og fær Curry 1,2 milljarð dollara. Stephen Curry reportedly will earn a MASSIVE $1.19 BILLION in his new 10-year contract with Li-Ning 😱That is worth almost 4 TIMES more than what he earned in his 12-year contract with Under Armour 😳This endorsement deal with Li-Ning is tied to brand revenue—meaning the… pic.twitter.com/7qb4HycFB1— Hoops (@Hoopss) June 2, 2026
NBA Mest lesið FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Íslenski boltinn Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu Fótbolti Veður í Infantino: „Hegðun sem ógnar tilvist leiksins“ Fótbolti Stór gulrót í bakgarðshlaupinu í Heiðmörk: „Alveg óskrifað blað“ Sport Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Formúla 1 Freyr fái fólk til að trúa: „Eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna“ Fótbolti Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Enski boltinn Biðst afsökunar og afsalar sér sigrinum Sport Fleiri fréttir Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sjá meira