Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar 2. júní 2026 09:01 Umbreytingin er algjör. Fyrir örfáum árum notuðum við Google til að leita að hlekkjum og heimildum, en í dag notum við gervigreind í leit að bestu mögulegu svörunum. Við treystum því að tæknin flokki hismið frá kjarnanum og dæli út upplýsingum sem við getum byggt rekstur og ákvarðanir á. En þar liggur hættan. Við gleymum því nefnilega að gervigreindin er ekki alvitur véfrétt sem geymir hinn eina sanna sannleika; hún er ferkantaðasti og lygamesti já-bróðir sem þú hefur nokkurn tímann unnið með. Forrituð til meðvirkni Stóru mállíkönin, eins og ChatGPT og Claude, eru þjálfuð með einkunnagjöf frá mannfólki. Og hvað kom í ljós í því þjálfunarferli? Mannskepnan er hégómleg. Við gáfum vélunum alltaf hærri einkunn þegar þær voru sammála okkur eða sögðu okkur nákvæmlega það sem við vildum heyra. Rannsakendur hjá Anthropic sýndu nýlega fram á þennan innbyggða undirlægjuhátt í gervigreindinni. Ef þú mætir að lyklaborðinu með ranga eða afar hlutdræga fullyrðingu, hefur tæknin tilhneigingu til að skrifa undir hana, fegra hana og rökstyðja, frekar en að leiðrétta þig. Ef forstjóri biður gervigreindina um að finna rök fyrir því að segja upp fólki, mun hún finna þau. Ef markaðsstjóri biður hana um rök fyrir því að nýja, lélega herferðin sé frábær, þá staðfestir hún það. Tökum eitt heitasta hitamál samtímans á Íslandi: ESB-aðildina. Ef inngróinn ESB-sinni biður gervigreindina um ástæður þess að Ísland verði að ganga í sambandið, fær hann tíu hárbeitt rök sem staðfesta eigin snilld. Ef harður andstæðingur mætir mínútu síðar og biður um tíu rök fyrir því að við eigum ekki að hefja viðræður, dælir mállíkanið þeim út með sama brosi. Þú getur jafnvel beðið gervigreindina um að tæta í sundur rök ESB-sinnans sem hún skrifaði sjálf fimm mínútum áður. Hún hefur enga skoðun; hún er bara að keppast við að fullnægja manneskjunni sem spyr. Útkoman er fullkominn, stafrænn bergmálshellir í kringum þínar eigin gloppóttu hugmyndir. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að við finnum oft fyrir eðlislægri andúð á greinum og skýrslum sem eru alfarið eða að stórum hluta skrifaðar af gervigreind. Við finnum á okkur að textinn hefur ekkert hryggjarstykki. Hann tekur enga raunverulega afstöðu, hann er of samþykkjandi, sléttur og felldur. Það vantar manninn sem er tilbúinn að setja nafnið sitt við sterka og jafnvel óvinsæla skoðun. Hvernig þvingum við fram upplýstari ákvarðanir? Ef við ætlum að nota gervigreind til að taka stórar viðskiptaákvarðanir, stýra framkvæmdum eða einfaldlega leysa flókin vandamál, þá verðum við að brjótast út úr meðvirkninni. Við þurfum að breyta þessum hjálplega já-bróður í miskunnarlausan gagnrýnanda. Hér eru sex skotheldar aðferðir til að fá betri, nákvæmari og gagnlegri svör: 1. Skilgreindu hlutverkið fyrst: Áður en þú spyrð stóru spurninganna skaltu segja vélinni hver hún er. Ef þú gerir það ekki, fer hún í sjálfgefna hlutverkið: kurteisan aðstoðarmann sem vill vera sammála þér. Byrjaðu frekar á: „Þú ert tortrygginn og raunsær fjármálastjóri sem hatar áhættu.“ Þetta slekkur á klappstýrunni og þvingar vélina í faglegt og hlutlægt hlutverk. 2. Bannaðu kurteisina (Miskunnarlausi vinkillinn): Næst þegar þú setur hugmynd, drög að tölvupósti eða stefnumótun inn í vélina, ekki biðja hana bara um yfirlestur. Bættu við þessari nákvæmu skipun: „Vertu miskunnarlaus (e. brutally honest). Slepptu allri kurteisi, tættu þennan texta í sundur og finndu þrjá helstu veiku punktana.“ Þú munt sjá svörin breytast úr innantómu hrósi yfir í hárbeitta greiningu. 3. Rauða og bláa teymið (Red / Blue Team): Búðu til átök. Þú biður gervigreindina um að setja upp „Rauða teymið“ (hinn miskunnarlausa keppinaut sem á að skjóta hugmyndina í kaf) og „Bláa teymið“ (verjandann). Láttu vélina rökræða við sjálfa sig á skjánum þínum og dragðu þínar eigin ályktanir af átökunum. 4. Kryfja fyrirfram: Í stað þess að spyrja hvernig eigi að láta verkefni heppnast, biddu gervigreindina um að ferðast fram í tímann. Segðu: „Ímyndaðu þér að það séu liðnir sex mánuðir. Þetta verkefni hefur farið algjörlega til fjandans og fyrirtækið hefur tapað milljónum. Útskýrðu nákvæmlega hvað klikkaði.“ Þetta neyðir mállíkanið til að finna blinda vinkla sem hvorki þú né samstarfsfélagarnir þorðuð að ræða. 5. Láttu hana hreinsa þína eigin blindu: Við afhjúpum okkar eigin hlutdrægni um leið og við skrifum skipunina. Snúðu dæminu við: Lýstu vandamálinu í stuttu máli og segðu: „Ég vil fá hlutlaust mat. Skrifaðu fyrir mig hið fullkomna prompt sem fjarlægir alla mína hlutdrægni, svo þú getir gefið mér heiðarlegt svar.“ Þú lætur þannig vélina endurskrifa spurninguna þína áður en hún svarar henni. 6. Kveiktu á djúphugsuninni (Deep Research / Thinking): Við erum orðin góðu vön að fá svör á sekúndubroti. En þessi hraði ýtir oft undir yfirborðskennd, meðvirk svör. Nýjustu og öflugustu líkönin bjóða í dag upp á rökrétta djúphugsun, þar sem vélin tekur sér mínútur eða jafnvel klukkutíma til að leita heimilda á netinu, sannreyna eigin niðurstöður og efast um eigin fullyrðingar áður en hún birtir svarið. Ef ákvörðunin skiptir raunverulegu máli, hættu þá að flýta þér og kveiktu á djúphugsuninni. Hinn sanni styrkleiki stjórnandans Það er nákvæmlega hérna sem stærsti styrkleiki okkar stjórnenda og sérfræðinga liggur. Í mínu starfi við ráðgjöf og innleiðingu gervigreindar hjá fyrirtækjum fer einn stærsti hlutinn einmitt í að leysa þennan hnút: Að kenna teymum að leiðrétta undirlægjuháttinn. Þeir stjórnendur sem ná raunverulegum árangri í dag eru ekki þeir sem nota gervigreindina til að staðfesta eigið ágæti, heldur þeir sem kunna að smíða ramma þar sem hún dregur þá til ábyrgðar, heldur þeim við efnið og kemur í veg fyrir að fyrirtækið keyri blint í kolranga átt. Raunverulegt verðmæti gervigreindar felst nefnilega ekki í getu hennar til að klappa okkur á bakið. Það liggur í getu hennar til að benda okkur á okkar eigin blindu. Ef þú notar hana bara til að staðfesta eigin snilld, ertu ekki að stíga inn í framtíðina; þú ert bara að byggja hraðbraut að næstu stóru mistökum. Ráðið andstæðing, ekki já-bróður – og fáið sérfræðinga til að stilla hann af. Höfundur er ráðgjafi í nýsköpun og gervigreind. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björgmundur Örn Guðmundsson Gervigreind Mest lesið Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun Skoðun Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar Grímsson og Cherry-picking Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar Skoðun Kveðum niður gyðingahatur Guðmundur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson skrifar Sjá meira
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun
Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar
Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar
Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar
Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar
Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun
Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun