Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar 28. maí 2026 15:02 Menntamálaráðherra hefur ekki farið leynt með andúð sína á bókstafaeinkunnum sem grunnskólum ber að nota við útskrift nemenda og hefur nú lagt fram áform í samráðsgátt um að taka aftur upp tölueinkunnir. Íslenskir kennarar eru engir sérstakir varðhundar bókstafaeinkunna, þrátt fyrir að slíkt sé stundum gefið í skyn í opinberri umræðu. Bókstafakerfið var heldur ekki tekið upp í kjölfar þrýstings frá kennurum. Ég man ekki eftir einum kennara sem hótaði að leggja niður störf ef hann þyrfti enn einu sinni að gefa nemendum einkunn í tölum. Bókstafaeinkunnir urðu hluti af grunnskólastarfi í kjölfar nýrrar aðalnámskrár sem kom út fyrir um fimmtán árum. Höfundar hennar, sem störfuðu í umboði stjórnvalda, töldu að sú grundvallarbreyting sem þar var gerð með því að leggja áherslu á hæfni kallaði á nýjan matskvarða. Frá upphafi hefur bókstafakerfið átt erfitt uppdráttar, enda var aðstoð við innleiðingu námskrárinnar og matskvarðans lítil sem engin og hver skóli þurfti að „finna út úr þessu“. Undanfarin misseri hefur þó orðið jákvæð breyting. Hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur farið fram fagleg og vönduð vinna við endurskoðun námskrárinnar og mikilvægum spurningum hefur verið svarað. Í raun má segja að samræmd innleiðing námskrárinnar sé loks hafin. Ef menntamálaráðherra vill nú breyta um stefnu og taka aftur upp tölustafi í einkunnagjöf er það ekki vandamál. Við kennarar munum aðlagast því eins og öðru. En áður en slík breyting tekur gildi þurfa að liggja fyrir skýrar og faglegar leiðbeiningar um hvernig tölueinkunnir eigi að endurspegla hæfniviðmið aðalnámskrár. Námskráin er nefnilega skrifuð með bókstafakerfið í huga og talar ekki sjálfkrafa tungumál tölustafa. Það er ekki hægt að leggja það á kennara að finna þetta bara út sjálfir - aftur. Það er ekki faglegt og mun skapa meiri óvissu og skilningsleysi. Kerfinu má alveg breyta, en aðeins ef þeim breytingum fylgir markviss og fagleg innleiðing. Hvorki bókstafir né tölur munu þó bæta árangur okkar í PISA. Því væri full ástæða til að beina tíma og orku ráðherra að stóru úrlausnarefnunum í íslensku skólakerfi í stað þess að gera matskvarðann að aðalatriði. Fjölmargar þjóðir nota nefnilega bókstafaeinkunnir án þess að það valdi teljandi deilum. Höfundur er skólastjóri Garðaskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grunnskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar