„Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Sindri Sverrisson skrifar 28. maí 2026 07:01 Sigurjón Guðmundsson sá um að verja mark Kolstad í úrslitakeppninni og fagnaði titlinum vel. @norgeshandballforbund Þó að pabbi hans sé leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi þá bjóst enginn við því ævintýri sem Sigurjón Guðmundsson hefur átt í vetur og náði hápunkti í gærkvöld með sigri í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.
Sigurjón, sem verður 29 ára í næsta mánuði, fluttist fullur af ævintýraþrá til Noregs ásamt konu sinni, Elnu Ólöfu Guðjónsdóttur, sumarið 2024. Hann hafði þá varið mark HK en parið vildi prófa eitthvað nýtt. Sigurjón fékk samning hjá Kolstad, norska ofurliðinu sem reyndar hefur svo dregið saman seglin síðustu misserin vegna mikilla fjárhagsvandræða, en var aðeins hugsaður sem þriðji markvörður liðsins, til taks ef á þyrfti að halda. Hann var hins vegar aðalmarkvörður Charlottenlund, venslaliðs Kolstad, í næstefstu deild. Eftir eitt tímabil þar sem Sigurjón spilaði 22 leiki í næstefstu deildinni, og hljóp stöku sinnum í skarðið hjá Kolstad, jafnvel í Meistaradeild Evrópu, var staðan enn þannig síðasta haust að hann var hugsaður sem þriðji markmaður stórliðsins, á eftir sænska landsliðsmarkverðinum Andreas Palicka og Dananum Nicolai Neupart. Benedikt og Sigurjón fögnuðu ákaft með liðsfélögum sínum í gærkvöld.@norgeshandballforbund Fyrrnefnd fjárhagsvandræði leiddu hins vegar á endanum til sölu á Palicka á miðju tímabili og meiðsli Neupart gerðu jafnframt að verkum að allt í einu var Sigurjón orðinn aðalmarkvörður. Óhætt er að segja að Sigurjón, sem er sonur landsliðsgoðsagnarinnar Guðmundar Hrafnkelssonar, hafi gripið gæsina og í úrslitaeinvíginu gegn Drammen var hann öryggið uppmálað. Sigurjón var með 34 prósent markvörslu þegar Kolstad vann 34-30 í fyrsta leik og hann var svo með 31 prósent markvörslu í gærkvöld þegar Kolstad tryggði sér titilinn með 39-24 risasigri og þar með sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Í grein Norsk Topphåndball, hagsmunasamtaka norsku úrvalsdeildarfélaganna, er Sigurjóni lýst sem „íslensku eldfjalli“ sem verið hafi eins og veggur bakvið vörn Kolstad í gær. Um tíma, meðan Kolstad náði upp sínu mikla forskoti, hafi Sigurjón verið með 50 prósent markvörslu og átt sinn þátt í að staðan var orðin 18-11 í hálfleik. Leikmenn Kolstad fögnuðu vel eftir að hafa unnið úrslitakeppnina.@norgeshandballforbund Sigurjón var í hópi þriggja Íslendinga sem spiluðu og áttu ríkan þátt í sigri Kolstad í úrslitakeppninni, eftir silfur í deildarkeppninni og bikarkeppninni fyrr á leiktíðinni. Benedikt Gunnar Óskarsson lét mikið til sín taka í gærkvöld og skoraði fjögur mörk og átti heilar sjö stoðsendingar, eftir að hafa verið markahæstur með níu mörk í fyrri sigrinum á Drammen. Fyrirliðinn Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk í fyrri sigrinum en missti af leiknum í gærkvöld vegna meiðsla. Hann heldur nú til Þýskalands eftir að hafa samið við Hannover-Burgdorf. Arnór Snær Óskarsson, bróðir Benedikts, var einnig í liði Kolstad í upphafi leiktíðar en sneri svo heim til Vals og varð Íslandsmeistari í vor. Þangað hefur Sigurjón reyndar einnig verið orðaður og gæti því misst af Meistaradeildarkvöldunum með Kolstad næsta vetur.
Norski handboltinn Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira