City að vinna United í slagnum um Anderson Sindri Sverrisson skrifar 26. maí 2026 17:38 Elliot Anderson er líklega á leið frá Nottingham Forest í sumar en vill eflaust fyrst einbeita sér að HM. Getty/Mike Egerton Enski miðjumaðurinn Elliot Anderson er í sigti beggja Manchester-félaganna en Manchester City er fremst í kapphlaupinu um þennan 23 ára gamla leikmann Nottingham Forest.
BBC fullyrðir þetta í grein nú síðdegis og segir það sífellt líklegra að Anderson yfirgefi Forest í sumar. Enn beri þó mikið í milli hjá City og Forest varðandi verðmiðann. Breski ríkismiðillinn segir að mögulega muni Anderson slá met Declan Rice og verða dýrasti breski leikmaður sögunnar. Forkólfar Arsenal samþykktu fyrir þremur árum að greiða West Ham 105 milljónir punda fyrir Rice og sjá ekki eftir því í dag. BBC segir að forráðamenn United muni ekki láta til leiðast að greiða of hátt verð fyrir Anderson og hafi heldur engan áhuga á langvinnum samningaviðræðum. Í herbúðum Forest vonist menn hins vegar eftir því að geta fengið risaupphæð og að þeir séu meðvitaðir um að eigi Anderson gott HM með Englandi í sumar þá styrki það samningsstöðu Forest. Man City are in pole position for Elliot Anderson's signature 🌳➡️❓ pic.twitter.com/5toMk54YCm— Match of the Day (@BBCMOTD) May 26, 2026 Anderson vann EM U21-landsliða með Englandi í fyrrasumar. Hann kom til Forest frá Newcastle árið 2024 fyrir 35 milljónir punda og hefur spilað 92 leiki og skorað sex mörk. Hann fékk standandi lófatak þegar honum var skipt af velli í 1-1 jafnteflinu við Bournemouth á sunnudaginn, eftir sinn 50. leik á tímabilinu. Vitor Pereira, stjóri Forest, vill vitaskuld halda þeim Anderson og Morgan Gibbs-White en gerir sér grein fyrir stöðunni nú þegar Forest er ekki á leið í Evrópukeppni og endaði aðeins í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. „Ef að við ætlum að berjast fyrir háleitari markmiðum þá verðum við að halda okkar bestu leikmönnum. Ef við breytum alltaf til á hverri leiktíð þá er erfitt að ná upp stöðugleika og byggja upp eitthvað stærra og meira. Við ráðum auðvitað ekki markaðnum en ég held að við séum á sömu línu, bæði ég og félagið teljum að við þurfum að halda sem flestum og hafa stjórn á markaðnum,“ sagði Pereira eftir lokaumferðina á sunnudaginn.
Enski boltinn Manchester City Manchester United Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Fleiri fréttir Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ Sjá meira