Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Birgir Olgeirsson skrifar 22. maí 2026 12:42 Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins. Vilhelm Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, vill að þjóðin fái að vita fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið hvaða samningsmarkmið Ísland ætli að leggja upp með í loftslags-, orku- og flugmálum. Hún segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugsamgöngum til og frá Íslandi og spurði ráðherra hver kostnaðurinn yrði ef Ísland næði ekki markmiðum um allt að 55 prósenta samdrátt í losun.
Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, gerði mögulegar aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Fyrirspurn hennar til Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, snerist ekki um aðildina sjálfa heldur hvað ætti að liggja fyrir áður en þjóðin gengur til atkvæða um hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju. Tilefnið var nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna Íslands við Evrópusambandið. Í álitinu leggur meiri hlutinn til að spurningin verði: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Vísaði í nefndarálitið Í nefndarálitinu er fjallað sérstaklega um stöðu Íslands í loftslags- og orkumálum. Þar segir að Ísland hafi sérstakra hagsmuna að gæta vegna ETS-kerfisins, einkum þegar kemur að millilandaflugi. Þá er lögð áhersla á að tryggja þurfi að ETS-kerfið hafi ekki neikvæð áhrif á tíðni flugsamgangna til og frá Íslandi. Sigríður sagðist taka undir að verja þyrfti sérstöðu Íslands. Hún sagði hins vegar að vandinn væri ekki fræðilegur eða fjarlægur. Að hennar mati hefði ETS-kerfið þegar haft áhrif á flug til og frá landinu og lagt þunga byrði á íslensk fyrirtæki og almenning. „Mun hann beita sér fyrir því að þau samningsmarkmið verði kynnt þjóðinni áður en til þjóðaratkvæðagreiðslu kemur, en ekki eftir hana, þannig að íslenskur almenningur geti áttað sig á því hvar línan er dregin í sandinn?“ spurði Sigríður.Vísir/Anton Brink „Það liggur hins vegar fyrir að ETS-kerfið hefur haft áhrif á tíðni samgangna til og frá Íslandi og hefur meðal annars haft það í för með sér að flugfélag hér hefur orðið gjaldþrota, meðal annars vegna þungrar byrðar sem þetta kerfi hefur lagt á íslensk fyrirtæki og íslenskan almenning,“ sagði Sigríður. Kjarni málsins, að mati Sigríðar, er að kjósendur eigi að fá að vita fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu hvaða kröfur Ísland ætlar að gera í viðræðum við ESB, ekki eftir að þjóðin hefur þegar sagt já við því að hefja þær. Sérlausnir í EES ekki sjálfgefnar Sigríður vísaði einnig til samningsramma Evrópusambandsins frá árinu 2010. Þar komi fram að ákvæði EES-samningsins sem víkja frá regluverki ESB geti ekki talist fordæmisgefandi í aðildarviðræðum. Í samningsramma ESB frá 2010 segir að ákvæði EES-samningsins sem víki frá regluverki sambandsins geti ekki talist fordæmisgefandi í aðildarviðræðum. Með öðrum orðum telur Sigríður ekki hægt að ganga út frá því að sérlausnir eða aðlaganir sem Ísland hefur fengið í gegnum EES, þar á meðal í orku- og loftslagsmálum, haldi sjálfkrafa gildi sínu ef Ísland færi í aðildarviðræður. Hún spurði ráðherra því hvort hann myndi beita sér fyrir því að samningsmarkmið Íslands í þessum málum yrðu kynnt þjóðinni áður en kosið verður um viðræður. „Mun hann beita sér fyrir því að þau samningsmarkmið verði kynnt þjóðinni áður en til þjóðaratkvæðagreiðslu kemur, en ekki eftir hana, þannig að íslenskur almenningur geti áttað sig á því hvar línan er dregin í sandinn?“ spurði Sigríður. Segir orkufullveldið skýrt Jóhann Páll svaraði því til að ríkisstjórnin myndi áfram beita sér fyrir orkufullveldi Íslands og því að Ísland hefði forræði yfir eigin orkuauðlindum. Hann sagði Ísland þegar vera aðila að orkutilskipunum Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn, sem hefðu haft áhrif á íslenskan orkumarkað. Það breytti ekki því að skilyrði stjórnvalda væru skýr þegar kæmi að yfirráðum Íslands yfir eigin orkuauðlindum. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.Vísir/Anton Brink Jóhann Páll sagði stjórnvöld jafnframt reka öfluga hagsmunagæslu vegna ETS-kerfisins. Hún væri á forræði utanríkisráðuneytisins og snerist um að finna framtíðarlausn fyrir Ísland vegna sérstöðu landsins í flugi og samkeppnishæfni tengiflugs. „Það þjónar engum loftslagsmarkmiðum að eyðileggja hana,“ sagði Jóhann Páll um samkeppnishæfni tengiflugsins. Hann sagði mögulegar aðildarviðræður ekki breyta þeirri hagsmunagæslu. Ísland myndi berjast fyrir þessum hagsmunum hvort sem það væri á vettvangi EES-samstarfsins eða í hugsanlegum viðræðum við Evrópusambandið. Spurði um kostnað við ESR Í framhaldsspurningu sinni sneri Sigríður sér að samfélagslosunarkerfinu, svokölluðu ESR. Hún sagði slíka löggjöf ekki hafa verið fellda undir gildissvið EES-samningsins með sama hætti og ETS, en að ráðherra hefði engu að síður kynnt upptöku þess kerfis hér á landi. Í nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar er einmitt rakið að ETS hafi verið hluti EES-samningsins frá árinu 2008 en að öðru máli gegni um löggjöf sem varðar samfélagslosun og losun frá landnotkun, sem hafi verið talin falla utan gildissviðs EES. Þar kemur jafnframt fram að Ísland og Noregur hafi samið við ESB árið 2019 um að taka þær gerðir upp í bókun 31 við EES-samninginn. Sigríður spurði hvort Jóhann Páll teldi líklegt að Ísland næði markmiðum um 50 til 55 prósenta samdrátt í losun og hver kostnaðurinn yrði ef markmiðin næðust ekki. „Telur hann líklegt að við náum þessum markmiðum sem ráðherrann hefur sett Ísland inn í, þ.e. um 50 til 55 prósenta samdrátt í losun? Og hver yrði kostnaður Íslands við þetta kerfi, sérstaklega ef við næðum ekki þessum markmiðum?“ spurði Sigríður. Veltur á árangri í losunarsamdrætti Jóhann Páll svaraði því til að Ísland hefði þegar undirgengist skuldbindingar vegna ESR. Það hefði verið samþykkt á Alþingi, meðal annars með stuðningi þingmanna Miðflokksins. Hann sagði kostnaðinn ráðast af því hversu miklum árangri Ísland næði í að draga úr losun. „Varðandi kostnaðinn þá auðvitað veltur það á því hversu miklum samdrætti í losun við náum,“ sagði Jóhann Páll. Ráðherra lauk svari sínu á því að vara við því sem hann kallaði uppgjöf fyrir fram gagnvart Evrópusambandinu. Hann sagði Íslendinga eiga að ganga stoltir til mögulegra viðræðna og ekki gefa sér að Ísland kæmist hvorki lönd né strönd. „Við erum ekki að fara með í aðra þjóðaratkvæðagreiðslu vonlausan samning við Evrópusambandið sem stjórnarflokkarnir standa ekki með,“ sagði Jóhann Páll.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Flug Alþingi Loftslagsmál Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Sjá meira