Viðskipti innlent

Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Lands­bankans

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Jón Þór er nýr yfirlögfræðingur Landsbankans.
Jón Þór er nýr yfirlögfræðingur Landsbankans. Landsbankinn

Jón Þór Grímsson hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur Landsbankans. Hann stýrir Lögfræðiþjónustu bankans og heyrir beint undir bankastjóra.

Jón Þór lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 2003 og BS-gráðu í viðskiptafræði frá American University of Rome árið 2000. Hann er auk þess með lögmannsréttindi og verðbréfaréttindi. 

Í tilkynningu frá bankanum segir að yfirlögfræðingur eigi mikilvægan þátt í að styðja við hlutverk bankans um að vera traustur banki fyrir farsæla framtíð viðskiptavina. Í ráðningarferlinu var litið til þess að góður yfirlögfræðingur þarf að vera lausnamiðaður og hafa áhuga og skilning á framþróun nútímalegrar bankaþjónustu.

„Jón Þór hefur skýra og metnaðarfulla sýn á þau tækifæri sem felast í því að þróa áfram lögfræðiþjónustu bankans til stuðnings stefnu hans og markmiðum. Hann hefur öðlast verðmæta reynslu í fjölbreyttum störfum innan bankans, hefur góða yfirsýn yfir fjármálamarkaðinn og mætir sterkur til leiks,“ er haft eftir Lilju Björk Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×