Grét alla Reykjanesbrautina Valur Páll Eiríksson skrifar 20. maí 2026 08:02 Ingibergur Þór Jónasson hefur leitt körfuknattleiksdeild Grindavíkur í gegnum krefjandi tíma. Vísir/Lýður Grindvíkingar gleðjast þessa dagana eftir langþráðan Íslandsmeistaratitil í körfubolta. Þungbær vegur var troðinn í átt að titlinum og fráfarandi formaður körfuknattleiksdeildar getur vart hugsað sér betri leið til að kveðja.
Eftir að hafa verið afar nærri því að fagna Íslandsmeistaratitlinum síðustu tímabil og eftir allt sem undan er gengið í Grindavík tókst það loks í fyrrakvöld að landa Íslandsmeistaratitlinum. Þetta hefur meiri þýðingu en aðeins hver annar titill. „Mér hefur ekki liðið svona vel í tvö ár. Það er rosalega þungu fargi af manni létt,“ segir Ingibergur Þór Jónasson, fráfarandi formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur í Sportpakkanum á Sýn. „Þetta nær svo langt út fyrir parketið. Við erum búin að vera með vindinn í fangið sem samfélag allan þennan tíma, við að reyna að komast heim.“ Það hafi komi tímapunktar þar sem hefði verið hægt að gefast upp. „Þegar maður sá hvað þetta gerði fyrir samfélagið og fyrir sjálfan mann, þá var eiginlega ekki aftur snúið. Það er eiginlega bara þannig. Það hefur veitt okkur þann kraft að hafa haldið áfram svona lengi,“ segir Ingibergur. Missti föður sinn tveimur mánuðum áður en hann missti heimilið Það hefur gengið á ýmsu frá rýmingu Grindavíkur í nóvember árið 2023. Ingibergur sagði þá í tilfinningaríku viðtali í Sportpakkanum á Sýn að hann hræddist að körfubolti í Grindavík myndi leggjast af. „Ég hafði misst pabba minn í september og misst heimilið mitt tveimur mánuðum seinna. Ég lenti þá í rýmingu og grét í bílnum þegar ég keyrði brautina í bæinn,“ „Þannig leið mér bara þá. Ég var ekkert viss um að við færum aftur heim,“ segir Ingibergur. Gleðitár í stað sorgartára Gleðitár hafa nú komið í stað þeirra sorgartára. „Ég var bara byrjaður að gráta þegar 3:30 voru eftir af leiknum. Ég einhvern veginn bara vissi það að við værum að fara að sigla þessu.“ Ingibergur er hættur sem formaður körfuknattleiksdeildarinnar. Er þetta ekki fullkomin leið til að kveðja? „Já, ég held það. Nú þarf ég bara að fara að hlúa að fjölskyldunni minni og sjálfum mér. En já, þetta er fullkomin leið til þess að gera það.“ Ingibergur kom í töluvert lengra viðtal við Sýn sem má sjá í heild í spilaranum að neðan og einnig heyra í hlaðvarpinu Besta sætið á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Klippa: Sorgartár urðu að gleðitárum
Grindavík UMF Grindavík Bónus-deild karla Mest lesið Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Fótbolti Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Sport Kevin Keegan látinn Enski boltinn Tove nýtti tímann sinn á Íslandi til hins ítrasta Sport Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Fótbolti Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum á Spáni Fótbolti Gætu misst bæði Messi og landsliðsþjálfarann sinn Fótbolti Guardiola hafði rétt fyrir sér um Rodri Fótbolti Spánverjar heimsmeistarar Fótbolti Íslenska víkingaklappið lifir: FH-strákarnir unnu Gothia Cup Sport Fleiri fréttir Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM Sjá meira