Uppskrift að stéttskiptu samfélagi og vonleysi Davíð Bergmann skrifar 19. maí 2026 07:30 Skilaboðin eru hrópandi Það sást best í síðustu sveitarstjórnarkosningum að þúsundir ungmenna í vanda komast einfaldlega ekki á dagskrá hjá pólitísku elítunni. Það hefur svo sem ekki vantað að fólk fari á innsogið yfir vanda þeirra þegar eitthvað alvarlegt bjátar á í samfélaginu enda eru áhyggjur ókeypis og líta vel út í fjölmiðlum. Jú, ráðamenn hafa átt það til að lýsa yfir þungum áhyggjum af ungmennum sem geta ekki lesið sér til gagns eða glíma við skólaforðun. En hvað með þau 3.000 ungmenni á aldrinum 16–24 ára sem eru hvorki í skóla né vinnu, bara á höfuðborgarsvæðinu? Áætlar kerfið einhvern tímann að mæta þeim með öðru en innantómum frösum? Ætli þessir einstaklingar eigi einhvern tímann eftir að slefa í gegnum greiðslumat til að kaupa sér þak yfir höfuðið, sérstaklega þegar gervigreindin mætir á svæðið til að hirða af þeim tækifærin á meðan við sýnum ekki einu sinni þann lágmarksmetnað að sinna þeim? Svarið liggur í augum uppi. Þetta eru nefnilega sömu ungmennin og voru orsökin fyrir pólitíska innsoginu fyrir nokkrum árum, einfaldlega vegna þess að þau gátu ekki fylgt kerfinu. Núna eru þau mörg hver bara gróðursett við tölvuskjáinn; stað þar sem þau fá loksins að vera eitthvað annað en „lúserar“ í hversdeginum á meðan raunveruleikinn fyrir utan er hannaður til þess eins að láta þau drepast úr kvíða og þunglyndi, étandi svefnlyf bara til þess að ná að sofa. Þetta dæmigerða aðstöðuleysi og skeytingarleysi teygir sig reyndar víðar í kerfinu; þetta minnir á þegar nærri þúsund iðnnemum var sópað út af borðinu á síðasta ári vegna plássleysis. Ætli það hafi bara gleymst að panta nóg af stólum fyrir framtíðina? En það er víst engin ástæða til að dramatísera hlutina hvað er ein kynslóð af handverksfólki á milli vina þegar skriffinnskan þarf að fá sinn vinnufrið? Í báðum tilfellum er niðurstaðan sú sama. Skilaboðin eru hrópandi: Lífinu er einfaldlega skellt á „hold“ á meðan kerfið lamast í eigin handvömm og undarlegri forgangsröðun. Rætur stéttskiptingarinnar Svo er fólk stórhissa á því að sérsveitin hafi farið í tólf sinnum fleiri vopnuð útköll árið 2024 en árið 2014. Gerðist þetta af sjálfu sér eða er einhver skýring á þessu? Vissulega hefur lögreglan þurft að fást við skipulagða glæpahópa og nýjar áskoranir, eins og þá staðreynd að hingað hefur komið fólk úr öðrum menningarheimum. En það getur hreinlega ekki verið eina útskýringin á þessari sprengingu. Skyldi það kannski líka hafa eitthvað með það að gera að við neitum að bjóða upp á tækifæri fyrir sum ungmenni? Skoðum bara staðreyndirnar: Hlutfall ungra öryrkja á aldrinum 18–29 ára hér á landi hefur aukist um 13,6% frá aldamótum. Með þessu áframhaldi munum við aldrei laga ástandið. Eða eru þetta bara talin eðlileg afföll í okkar fína samfélagi? Þeir sem dæmdir eru til fátæktar, örorku og útilokaðir frá þátttöku munu jú bara vera þarna einhvers staðar, geymdir í útvöldum hverfum. Þeirra hringrás nær aldrei lengra en í Kolaportið um helgar, á staði sem elítan gætir þess vel að venja ekki komur sínar á eða beint inn í undirheimana. Er það ekki nákvæmlega þetta sem við köllum uppskrift að stéttskiptu samfélagi? Höfundur er unglingaráðgjafi til 30 ára og starfsmaður Fjölsmiðjunnar, áhugamaður um betra samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun