Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 14. maí 2026 13:30 Einkavæðing og sala á eignum sveitarfélaga hefur borið töluvert á góma nú í aðdraganda kosninga. Sjálfstæðisflokkurinn hélt nýlega blaðamannafund og kynnti tillögur um að ríkið selji 40% hlut í Landsneti og 40% hlut í RARIK og formaður flokksins hefur talað fyrir því að ráðist verði í sölu á stórum hlut í Landsvirkjun til einkaaðila. Meðferðin á Orkuveitu Reykjavíkur fyrir hrun og salan á hlut borgarbúa í Landsvirkjun á undirverði er mörgum í fersku minni, og nú þegar Sjálfstæðisflokkurinn boðar risaskref til einkavæðingar á raforkuinnviðum er fullt tilefni til að hnykkja á nokkrum atriðum. Landsnet er ekki hefðbundið fyrirtæki á samkeppnismarkaði heldur innviðafyrirtæki í náttúrulegri einokunarstöðu. Það er burðarás raforkukerfisins á Íslandi sem við höfum treyst fyrir uppbyggingu samfélagslegra innviða sem eru forsenda búsetu, atvinnuuppbyggingar og raforkuöryggis um allt land. Fram undan er tímabil gríðarlegra fjárfestinga í flutningskerfi raforku. Hætt er við því að einkavæðing og stífari kröfur um skjótfenginn arð leiði annaðhvort til verulegra gjaldahækkana á notendur eða hægari uppbyggingar og stöðnunar. Sömu sjónarmið gilda um RARIK, fyrirtæki sem á rætur í farsælum ákvörðunum fyrri kynslóða um að rafvæða sveitir landsins. Dreifikerfi RARIK nær til Vestur-, Norður-, Austur- og Suðurlands og 50 þéttbýliskjarna víðsvegar um landið. Fyrirtækið veitir grundvallarþjónustu í umhverfi sem markast af strjálbýli, erfiðum rekstrarskilyrðum og augljósum markaðsbrestum. Líklegasta niðurstaðan af einkavæðingu RARIK er aukinn orkukostnaður íbúa í þeim tugum sveitarfélaga sem njóta þjónustu fyrirtækisins. Ef markmið okkar er byggðajöfnuður, þjónustuskuldbinding á dreifbýlum svæðum og hófleg gjaldskrá er opinbert eignarhald skynsamlegasti kosturinn. Sala á hlutum ríkisins í Landsvirkjun er líka afspyrnuvond hugmynd. Fyrirtækið er í markaðsráðandi stöðu og í raun með einokun á stýranlegu afli í raforkukerfinu. Það er grundvallarkrafa að arðurinn sem slík aðstaða skapar renni til almennings. Fyrirséð er að arðsemi Landsvirkjunar muni aukast töluvert á næstu árum eftir því sem stórar virkjanir verða fullafskrifaðar. Að selja eign á slíkum tímapunkti jafngildir því að gefa frá sér framtíðartekjur fyrir skammtímagróða. Slíkt væri ábyrgðarleysi gagnvart samfélaginu og komandi kynslóðum. Einkaaðilar gegna mikilvægu hlutverki í raforkukerfinu okkar og munu gera það áfram, en einkavæðing á fyrirtækjum í markaðsráðandi stöðu eða náttúrulegri einokunarstöðu er uppskrift að hagsmunaárekstrum, hærra verði og verri þjónustu. Það er gæfa Íslands að við höfum byggt upp orkukerfi í þágu samfélagsins alls. Leyfum engum að eyðileggja þessa sérstöðu okkar. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhann Páll Jóhannsson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Orkumál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Einkavæðing og sala á eignum sveitarfélaga hefur borið töluvert á góma nú í aðdraganda kosninga. Sjálfstæðisflokkurinn hélt nýlega blaðamannafund og kynnti tillögur um að ríkið selji 40% hlut í Landsneti og 40% hlut í RARIK og formaður flokksins hefur talað fyrir því að ráðist verði í sölu á stórum hlut í Landsvirkjun til einkaaðila. Meðferðin á Orkuveitu Reykjavíkur fyrir hrun og salan á hlut borgarbúa í Landsvirkjun á undirverði er mörgum í fersku minni, og nú þegar Sjálfstæðisflokkurinn boðar risaskref til einkavæðingar á raforkuinnviðum er fullt tilefni til að hnykkja á nokkrum atriðum. Landsnet er ekki hefðbundið fyrirtæki á samkeppnismarkaði heldur innviðafyrirtæki í náttúrulegri einokunarstöðu. Það er burðarás raforkukerfisins á Íslandi sem við höfum treyst fyrir uppbyggingu samfélagslegra innviða sem eru forsenda búsetu, atvinnuuppbyggingar og raforkuöryggis um allt land. Fram undan er tímabil gríðarlegra fjárfestinga í flutningskerfi raforku. Hætt er við því að einkavæðing og stífari kröfur um skjótfenginn arð leiði annaðhvort til verulegra gjaldahækkana á notendur eða hægari uppbyggingar og stöðnunar. Sömu sjónarmið gilda um RARIK, fyrirtæki sem á rætur í farsælum ákvörðunum fyrri kynslóða um að rafvæða sveitir landsins. Dreifikerfi RARIK nær til Vestur-, Norður-, Austur- og Suðurlands og 50 þéttbýliskjarna víðsvegar um landið. Fyrirtækið veitir grundvallarþjónustu í umhverfi sem markast af strjálbýli, erfiðum rekstrarskilyrðum og augljósum markaðsbrestum. Líklegasta niðurstaðan af einkavæðingu RARIK er aukinn orkukostnaður íbúa í þeim tugum sveitarfélaga sem njóta þjónustu fyrirtækisins. Ef markmið okkar er byggðajöfnuður, þjónustuskuldbinding á dreifbýlum svæðum og hófleg gjaldskrá er opinbert eignarhald skynsamlegasti kosturinn. Sala á hlutum ríkisins í Landsvirkjun er líka afspyrnuvond hugmynd. Fyrirtækið er í markaðsráðandi stöðu og í raun með einokun á stýranlegu afli í raforkukerfinu. Það er grundvallarkrafa að arðurinn sem slík aðstaða skapar renni til almennings. Fyrirséð er að arðsemi Landsvirkjunar muni aukast töluvert á næstu árum eftir því sem stórar virkjanir verða fullafskrifaðar. Að selja eign á slíkum tímapunkti jafngildir því að gefa frá sér framtíðartekjur fyrir skammtímagróða. Slíkt væri ábyrgðarleysi gagnvart samfélaginu og komandi kynslóðum. Einkaaðilar gegna mikilvægu hlutverki í raforkukerfinu okkar og munu gera það áfram, en einkavæðing á fyrirtækjum í markaðsráðandi stöðu eða náttúrulegri einokunarstöðu er uppskrift að hagsmunaárekstrum, hærra verði og verri þjónustu. Það er gæfa Íslands að við höfum byggt upp orkukerfi í þágu samfélagsins alls. Leyfum engum að eyðileggja þessa sérstöðu okkar. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar