Það er gott í Kópavogi Elísabet Sveinsdóttir skrifar 12. maí 2026 21:31 „Það er gott að búa í Kópavogi“ er setning sem hraut af munni Gunnars Birgissonar í sjónvarpsviðtali hér um árið. Setningin var gripin á lofti og hefur verið notuð óspart síðan. Og hún á rétt á sér – það er svo margt gott við Kópavog að erfitt er að vita hvar á að byrja. Kópavogur er bær sem hefur fundið einstakt jafnvægi milli borgarlífs og friðsæls hverfalífs. Hér er allt við höndina. Við erum miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, stutt að fara til allra átta – og auðvelt að finna ástæðu til að vera stoltur af bænum okkar á hinum ýmsu sviðum mannlífsins. Það eru forréttindi að geta gengið út af heimilinu og verið komin á fallega göngustíga innan fárra mínútna. Kópavogur er einstakur fyrir það hve stutt er í náttúruna, sama hvar þú ert í bænum. Kársnesið og fjaran bjóða upp á rólegar gönguleiðir með sjávarsýn, Fossvogsdalur og Kópavogsdalur tengja hverfin saman og eru paradís fyrir skokkara og hjólreiðafólk, og Guðmundarlundur er falin fjölskylduperla með grillaðstöðu og góðu skjóli. Útsýnið yfir Kópavogskirkju á kyrrum morgni er sömuleiðis eitthvað sem gleymist aldrei. Menning innan veggja og úti í laugum Kópavogur er löngu hættur að vera „bara“ næsti bær við Reykjavík. Bærinn hefur lagt mikinn metnað í að vera menningarbær og það sést best í Hamraborginni, þar sem Gerðarsafn, Salurinn, Náttúrusafnið og Bókasafnið mætast á einum stað. Gerðarsafn er framsækið listasafn sem þorir að prófa nýja hluti. Salurinn er einn besti tónleikasalur landsins – hljómburðurinn er í heimsklassa, og sagði Jónas Ingimundarson heitinn oft að þetta væri eini salurinn í heimi sem væri byggður utan um tónlistina sjálfa. Menningarlífið í Kópavogi sýnir að bærinn hefur sterka ímynd og er aðdráttarafl fyrir listunnendur. Næsta vor ætlum við að opna menningarmiðstöð í Smáralind og er það sérstakt tilhlökkunarefni og væn fjöður í menningarhatt bæjarins. Bókasafn í Kórnum opnar síðan árið 2029 og þar með verður til enn þéttara menningarnet í bænum. Sundið góða Fyrir skemmstu var íslensk sundlaugamenning sett á heimsminjaskrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf – og það er vel til komið. Íslenskar sundlaugar eru félagsmiðstöðvar og samkomustaðir samfélagsins þar sem málin eru krufin og fróðlegt er að hlusta á sjónarmið fólks á öllum aldri. Það er eitthvað sérstakt við að liggja í pottinum og hlusta á fólk skiptast á skoðunum um málefni líðandi stundar – takast á, vera sammála eða ósammála, en skilja í sátt. Þannig er það í sundlauginni. Ég vil jafnvel ganga svo langt að segja að án sundlauga væri vart byggilegt á Íslandi, en það er nú bara mitt mat. Við í Kópavogi eigum tvær frábærar sundlaugar sem eru opnar almenningi: Kópavogslaug og Salalaug. Oftar en ekki hafa báðar þessar laugar ratað á lista yfir vinsælustu sundlaugar landsins – ekki slæmt það. Kópavogslaug var tekin í notkun árið 1967 en hefur tekið miklum breytingum síðan þá. Byggingin er stílhrein, flæðið á milli úti- og inniaðstöðu er gott og kringum síðustu aldamót bættust ný útilaug og rennibrautir við sem gerðu hana að þeirri stóru fjölskylduparadís sem hún er í dag – með hinum ómetanlega hressandi útiklefa að auki. Nýr kaldur pottur er á leið í Kópavogslaug og verið er að byggja nýja innrauða gufu og þurrgufu í Salalaug. Sundlaugarnar eru starfræktar í þeim tilgangi að efla heilsu okkar. Já, það kostar helling að halda þeim gangandi, en útreikningar sýna að áhrifin á andlega og líkamlega heilsu bæjarbúa eru vel þess virði. Skýr stefna í daglegu lífi Kópavogur er bær sem hugsar til framtíðar. Kópavogsmódelið í leikskólamálum hefur sannað sig og foreldrar geta treyst því að börnin séu í góðum höndum. Jafnframt er verkefnið Virkni og vellíðan eitthvað sem við getum verið stolt af. Þar hafa eldri borgarar góða aðstöðu til að rækta líkama og sál – og fyrirhugað er að finna aðstöðu fyrir verkefnið Karlar í skúrum á næstu mánuðum. Í lýðheilsustefnu Kópavogs kemur skýrt fram að markmiðið sé að bærinn sé jákvætt og heilsueflandi samfélag sem stuðlar að vellíðan og öryggi bæjarbúa á öllum aldursskeiðum. Þetta er ekki bara orðagjálfur heldur sýnileg stefna sem birtist í daglegu lífi. Ef þú spyrð Kópavogsbúa hvað sé best við bæinn þeirra færðu líklega tíu mismunandi svör. Sumir nefna göngustígana, aðrir nálægðina við þjónustu, en flestir eru sammála um eitt: það er hreinlega gott að eiga heima hérna. Það gerist ekki af sjálfu sér heldur er það afleiðing styrkrar stjórnar bæjarmála og öflugs bæjarsjóðs. Kópavogur er ekki bara bær heldur griðastaður þar sem náttúra og borgarlíf mætast í einstöku jafnvægi. Það eina sem stendur upp á okkur er að tryggja að svo verði áfram og njóta þeirra gæða sem bærinn okkar býður upp á. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 4. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
„
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar