Uppgjörið: ÍBV - Valur 26-30 | Valur tryggði sér titilinn í annarri tilraun Hjörvar Ólafsson skrifar 12. maí 2026 19:42 Lovísa Thompson skoraði sex mörk í þessum leik. Vísir/Ernir Valur tryggði sér Íslndsmeistaratititilinn í handbolta kvenna með 30-26 sigri sínum gegn ÍBV í fjórða leik liðanna í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í kvöld. Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi en Valur fór betur af stað en góður lokakafli færði Eyjaliðinu eins marks forskot, 16-15, í hálfleik. Valur náði hins vegar 5-0 spretti í upphafi seinni hálfleiks og náði undirtökunum í leiknum. Um miðjan seinni hálfleik skoraði Valur ekki í um það sjö mínútur og ÍBV minnkaði muninn í eitt mark, 24-23, þegar tíu mínútur voru eftir. Undir lokin voru Valur aftur á móti sterkari á svellinu og ÍBV náði ekki að snúa taflinu sér í vil og knýja fram oddaleik. Valur er þar af leiðandi Ísladsmeistari fjórða árið í röð og 21. skipti í sögunni. Anton Rúnarsson stýrði Valsliðinu til sigurs í deild og bikar og skilaði Íslandsmeistaratitli á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölin hjá liðinu. Atvik leiksins Það var frábær kafli Valsliðsins á fyrstu mínútum seinni hálfleiksins sem lagði grunninn að þessum sigri. Þar varði Hafdis Renötudóttir vel á bakvið sterka vörn Vals og leikmenn gestanna fengu auðveld mörk úr hraðaupphlaupum og seinni bylgju. Stjörnur og skúrkar Eftir að hafa ekki komist á blað í síðasta leik fann Lovísa Thompson fjölina hjá Val og skoraði sex mörk og var markahæst ásamt Ásdísi Þóru Ágústsdóttur. Elísa Elíasdóttir kom næst með fimm mörk en hún var sömuleiðis öflug í hjarta varnarinnar hjá Val. Hafdís varði svo 11 skot þar af tvö vítaköst. Valsvörnin var svo öll að standa sig í stykkinu að þessu sinni. Sandra Erlingsdóttir dró vagninn í sóknarleik ÍBV og skoraði 12 mörk og Birna Berg Haraldsdóttir skilaði sjö mörkum á töfluna. Ólöf Maren Bjarnadóttir gerði sitt til þess að halda ÍBV inni í leiknum en hún varði 13 skot. Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, höfðu einkar góð tök á þessum leik og sáu til þess að það voru handboltaleg gæði sem voru í fyrirrúmi þegar allt var undir. Frammistaða dómaraparsins skilar þeim átta í einkunn. Stemming og umgjörð Það var pakkað í húsinu og stórkostleg stemming. Eyjamenn gerðu sitt til þess að styðja sitt lið til sigurs. Valsmenn voru með nokkuð stóran hóp sem lagði á sig langt ferðalag til þess að fagna Íslandsmeistaratitlinum. Olís-deild kvenna ÍBV Valur