Formúla 1

Ní­tján ára í hóp með Schumacher og Senna

Aron Guðmundsson skrifar
Kimi Antonelli hefur farið frábærlega af stað á keppnistímabili Formúlu 1.
Kimi Antonelli hefur farið frábærlega af stað á keppnistímabili Formúlu 1. Vísir/Getty

Það er óhætt að segja að Ítalinn ungi, Kimi Antonelli ökuþór Mercedes, sé að slá í gegn í Formúlu 1 um þessar mundir. Antonelli vann sinn þriðja kappakstur á ferlinum í mótaröðinni í gær. Þann þriðja í röð og stillir sér upp við hlið goðsagna á borð við Michael Schumacher og Ayrton Senna. 

Antonelli kom sá og sigraði í Miami kappakstrinum í gær eftir rúmlega mánaðarhlé í Formúlu 1. Nítján ára gamla ungstirnið var á ráspól í keppni gærdagsins og mátti hafa sig allan við að sigla heim sigrinum í umræddum kappakstri. 

Ítalinn missti fyrsta sætið frá sér í ræsingunni en gerði vel í að vinna sig aftur upp í baráttuna um sigurinn í keppninni og eftir baráttu við ríkjandi heimsmeistarann Lando Norris hjá McLaren stóð Antonelli uppi sem sigurvegari. 

Antonelli hefur verið góður í því að slá alls konar met í upphafi tímabils. Hann vermir nú efsta sæti stigakeppni ökuþóra nokkuð óvænt og afrek hans um nýliðna helgi eru ekki til þess að draga úr stemningunni sem ríkir gagnvart þessum öfluga ökuþór. 

Ráspóll Antonelli í Miami var hans þriðji á Formúlu 1 ferlinum og jafnframt sá þriðji í röð. Aðeins tveir ökuþórar í sögu Formúlu 1 hafa afreka að ná sínum fyrstu þremur ráspólum í mótaröðinni öllum í röð og það eru engin smá nöfn. 

Fyrir ráspól Antonelli um helgina höfðu fyrrverandi heimsmeistararnir og goðsagnirnar í sögu Formúlu 1, Ayrton Senna og Michael Schumacher, afrekað það að sækja sínu fyrstu þrjá ráspóla í Formúlu 1 alla í röð. 

Og eins og það hafi ekki verið nóg þá kom Antonelli sér líka í afar fámennan en góðan hóp með því að ná að vinna sína fyrstu þrjá kappakastra alla í röð í Formúlu 1. 

Fyrir sigur Antonelli í gær höfðu aðeins fyrrverandi heimsmeistararnir og goðsagnirnar Damon Hill og Mika Hakkinen aðeins afrekað það. 

Aðeins einum ökuþór hefur hins vegar tekist að vinna fyrstu þrjá kappakstra sína í röð í Formúlu 1 eftir sína fyrstu þrjá ráspóla í röð. Það er Kimi Antonelli. 

Antonelli leiðir nú stigakeppni ökuþóra eftir fyrstu fjórar umferðir tímabilsins. Hann er með tuttugu stiga forskot á liðsfélaga sinn hjá Mercedes, George Russell. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×