Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Valur Páll Eiríksson skrifar 3. maí 2026 11:01 Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús greindi sveiflu Sigmundar. Sá síðarnefndi þótti full hægri sinnaður með kylfuna. Vísir/Facebook Haraldur Franklín Magnús, einn fremsti kylfingur landsins, sló á létta strengi á samfélagsmiðlum um helgina þar sem hann greindi golfsveiflu þingmannsins Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins. Sigmundur var full hægri sinnaður í sveiflunni.
Sigmundur Davíð var staddur í Vestmannaeyjum á dögunum og birti myndband þar sem hann sagði Eyjamenn reiðubúna að slíta sig frá Íslandi og lýsa yfir sjálfstæði, skyldu landsmenn ákveða að ganga í Evrópusambandið. Til stendur að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að sambandinu í haust og hefur Sigmundur verið meðal fremstu talsmanna gegn þeim viðræðum. Sigmundur sló á létta strengi og vísaði í frægt myndband af George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, eftir að hann hafði komið skilaboðunum um Eyjar og ESB á framfæri og sagði: „Sjáið þið nú þetta dræv“ áður en hann tók golfhögg. Þar vísaði hann til frægs augnabliks Bush frá 2002 þegar hann var í fríi í Maine en sat fyrir svörum blaðamanna eftir hryðjuverkaárás í Ísrael. Bush var þar alvarlegur og óskaði eftir því að allar þjóðir heims gerðu það sem þær gætu að stöðva hryðjuverkamennina, áður en hann beindi blaðamönnum að sveiflu sinni með sömu orðum: „Now watch this drive“. Segja má að sveifla Bush sé heldur frambærilegri en sú hjá Sigmundi en atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús greip myndband Sigmundar á lofti. Hann greindi sveifluna í þaula og veitti honum góð ráð í myndbandi sem hann birti á Facebook og Instagram. Sigmundur hafi klikkað á því að færa þungann frá hægri fæti til þess vinstri við sveifluna. „Þetta er flott baksveifla, en vantar kannski aðeins upp á vinstri olnbogann. (...) Svo kemur niðursveiflan. (...) Gallinn er að hann er með allan þungann á hægri fæti. (...) Þegar hann klárar sveifluna má sjá að þá er þunginn enn á hægri fæti. Þetta er allt í lagi golfsveifla en það gæti verið erfitt fyrir Sigmund að spila golf þar sem í golfi þarf aðeins að koma sér yfir á vinstri,“ segir Haraldur í myndbandinu sem má sjá að neðan.
Miðflokkurinn Vestmannaeyjar Golf Alþingi Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira