Gæði kennslu: Farsæld sem markmið menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir, Berglind Gísladóttir, Birna María B. Svanbjörnsdóttir, Guðmundur Engilbertsson, Hermína Gunnþórsdóttir, Jóhann Örn Sigurjónsson, Rúnar Sigþórsson og Sólveig Zophoníasdóttir skrifa 5. maí 2026 09:02 Í þessari annarri grein í greinaflokknum um gæði kennslu, fjöllum við um breytta heimsmynd sem við okkur blasir í nútíð og framtíð og farsæld sem markmið menntunar sem mögulegt svar við henni. Í breyttri heimsmynd nútímans er menntun sem býr einstaklinga undir að lifa og starfa í ófyrirséðum heimi framtíðar öflugasta leið samfélaga til framfara og farsældar. Í samræmi við þetta má um þessar mundir sjá vaxandi áherslu alþjóðastofnana á borð við OECD og UNESCO á að færa markmið menntunar í átt að farsæld einstaklinga og samfélaga (e. flourishing as the aim of education). Farsæld felur í sér heildstæðan þroska einstaklinga og hæfni þeirra til að taka virkan og ábyrgan þátt í samfélaginu og þróun þess, vega og meta aðstæður, takast á við ófyrirsjáanlegar áskoranir, leysa ágreining og taka ígrundaða siðferðislega afstöðu til mannlegra athafna. Menntun sem miðar að þessu marki felst m.a. í því að nemendur fái tækifæri til að þróa með sér forvitni og hugmyndaflug; seiglu og sjálfstjórn til að takast á við mistök og höfnun og halda áfram í mótlæti og að þeir læri að virða og meta hugmyndir, sjónarmið og gildi annarra. Áhugahvöt þeirra þarf að beinast að fleiru en voninni um að fá gott starf og háar tekjur; þeir munu líka þurfa að hugsa um velferð annarra, fjölskyldu og vina, og ekki síst velferð samfélagsins og plánetunnar. Farsæld sem markmið menntunar og hlutverk kennara Það er auðvelt að færa rök fyrir mikilvægi þess að beina sjónum að hlutverki kennara við að ná framangreindum markmiðum menntunar og hafa þau áhrif á nemendur að þeir skilji sjálfa sig sem hluta af stærri heild sem hafi hlutverk og sjálfsvald (e. agency) til að hafa áhrif á eigin líf og annarra. Til þess þarf meðal annars að viðurkenna og vinna með styrkleika og sérkenni einstaklinga og leitast við að skilja tengsl nemenda við kennara sína, félaga, fjölskyldur og samfélagið, því allt hefur þetta áhrif á nám nemenda og hvatann til náms. Menntakerfið þarf einnig að breytast til að þjóna samfélagslegu hlutverki sínu og styðja við breytt hlutverk kennara. Það þarf að verða hluti af samfélagslegu vistkerfi þar sem hagsmunaaðilar axla sameiginlega ábyrgð á farsæld og þroska nemenda og bera faglega ábyrgð á endurgjöf og umbótum. Viðurkenna þarf í verki að nemendur séu ólíkir og fari ólíkar leiðir í námi og að námsferli og námsreynsla þeirra sé ekki síður mikilvæg en mælanlegur lokaárangur. Til þess þarf fjölbreytt námsmat þar sem nemendur eiga virka aðild að ákvörðunum um eigið nám. Gæði kennslu – gæði náms Kennsla á framangreindum forsendum felur óhjákvæmilega í sér samskipti kennara og nemenda og ekki er unnt að tala um hana án þess að hafa slík tvíhliða samskipti í huga. Í öðru lagi felur kennsla í sér þann ásetning kennara að virkja nemendur og beina athygli þeirra að tilteknum þáttum og í þriðja lagi þarf kennslan að hafa tilgang sem skólakerfið – og raunar samfélagið allt – hefur komið sér saman um. Síðast taldi þátturinn felur í sér hæfni sem samanstendur af þekkingu, leikni og siðferðilegum gildum og býr nemendur undir framtíðina, félagsmótun sem býr ungt fólk undir að skapa sér stöðu í samfélagi framtíðarinnar og eiga uppbyggileg félagsleg samskipti við aðra, sjálfstæði og ábyrgð við að móta eigin líf og hafa áhrif á samfélagið. Það blasir við að opinber námskrá sem er trú framangreindri sýn á menntun getur ekki byggst á forskriftum fyrir kennara, heldur verða þeir að hafa traust samfélagsins, frelsi og sjálfræði til þess að móta sína eigin námskrá á grunni hennar. Með öðrum orðum þurfa kennarar að skapa nemendum námstækifæri, á grunni námskrárinnar, til þess að ná þeim árangri sem hér hefur verið lýst. Námstækifærin skapast af öllu því sem kennarinn gerir til þess að nemendur læri og nái árangri. Þau eru þó ekki yfirráðasvæði kennarans eins heldur vettvangur þar sem ofinn er sá flókni vefur samskipta kennara og nemenda, og á milli nemenda, sem liggur öllu námi til grundvallar. Gæði kennslu – starfsþróun kennara Eðli málsins samkvæmt byggist sú kennsla sem skapar nemendum varanleg námstækifæri á hæfni kennara og því að þeir þrói hana til samræmis við markmið menntunar og hlutverk skólans á hverjum tíma. Þess vegna þarf undirbúningur fyrir slíka kennslu að vera snar þáttur í grunnmenntun kennara og í starfsþróun sem starfandi kennarar fá tækifæri og stuðning til að efla hæfni sína til að skapa nemendum varanleg námstækifæri. Öflugasta leiðin til þess er að byggja skóla upp sem faglegt lærdómssamfélög þar sem stjórnendur og kennarar vinna í teymum, læra hver af öðrum og hver með öðrum, taka sameiginlega ábyrgð á námi og farsæld nemenda og gera ráð fyrir þátttöku þeirra í ákvörðunum. Til þess þurfa skólar öflugan stuðning sem er á ábyrgð ríkis og sveitarfélaga. Lokaorð Í þessari grein höfum við lýst framtíðarsýn um það hvernig menntun getur orði afl til framfara og farsældar einstaklinga jafnt sem samfélaga. Slíkt menntakerfi er hluti af samfélagslegu vistkerfi, sem axlar sameiginlega ábyrgð á námi nemenda og umbótum á öllum stigum skólakerfisins. Síðast en ekki síst höfum við fært rök fyrir því að skólar og kennarar séu sá grunnur sem menntakerfi af þessu tagi byggist á og þess vegna sé brýnt að í grunnmenntun og starfsþróun kennara sé fjallað um það á markvissan hátt hvernig sá flókni vefur sem ofinn er í samskiptum nemenda og kennara getur leitt til farsællar og árangursríkrar menntunar sem býr nemendur undir framtíð þar sem margt er á huldu og fátt í hendi annað en breytingarnar. Höfundar: Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ Berglind Gísladóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ Birna María B. Svanbjörnsdóttir, dósent við Kennaradeild HA Guðmundur Engilbertsson, lektor við Kennaradeild HA Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild HA Jóhann Örn Sigurjónsson, Sérfræðingur í stærðfræðimenntun hjá MMS Rúnar Sigþórsson, prófessor emeritus við Kennaradeild HA Sólveig Zophoníasdóttir, aðjúnkt við Kennaradeild HA Heimildir Anna Kristín Sigurðardóttir, Hermína Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson (ritstj.). (2025). Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur. Háskólaútgáfan. https://haskolautgafan.is/products/gaedi-kennslu-namstaekifaeri-fyrir-alla-nemendur?taxon_id=4 Klette, K., Magnusson, C. G. og Sigurjónsson, J. Ö. (ritstj.). (2026). Investigating teaching quality through video capture: Equity and quality in Nordic classrooms. Springer. https://link.springer.com/book/10.1007/978-3-032-06893-4 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar