Loforðin sjö – Ofbeldi, hvað svo? – Ég lofa Sigrún Sigurðardóttir skrifar 29. apríl 2026 18:02 Þegar barn verður fyrir kynferðislegu ofbeldi upplifir það áfall og fer þá af stað varnarviðbragð til að lifa af. Fyrstu viðbrögð við áfalli, eins og ofbeldi, eru gjarnan að flýja eða berjast. Ef barn getur ekki flúið eða barist getur það frosið eða farið í að þóknast til að lifa af. Varnarviðbrögð við atburðum stjórnast af skilaboðum sem berast frá heilanum í gegnum taugakerfið. Að berjast, flýja, frjósa eða þóknast eru viðbrögð sem við notum í yfirþyrmandi og ógnandi aðstæðum. Þetta er í raun ekki meðvitað val, heldur ósjálfráð viðbrögð sem taugakerfið stýrir. Því meiri yfirburði sem gerandi hefur og því meiri sem ógnin er, þeim mun líklegra er að viðbragðið verði að frjósa eða þóknast, þar sem barnið getur hvorki flúið né barist. Líkaminn leitast stöðugt við að ná og viðhalda jafnvægi í taugakerfinu. Ef jafnvægi næst fljótlega eftir áfall eru meiri líkur á að afleiðingarnar verði minni. Ef alvarlegir atburðir endurtaka sig, eins og oft gerist í kynferðislegu ofbeldi, nær líkaminn og taugakerfið ekki að slaka á og er stöðugt á varðbergi. Líkaminn er þá í sífelldri viðbragðsstöðu og taugakerfið tilbúið að takast á við ógn. Það getur jafnvel fest sig í viðbragðinu að berjast, flýja, frjósa eða þóknast, sem getur leitt til langvarandi og skaðlegrar streitu. Þótt eðlileg streituviðbrögð séu ekki heilsuspillandi getur langvarandi streita, eins og sú sem fylgir stöðugu áreiti eftir ofbeldi, veiklað eða bælt ónæmiskerfið. Afleiðingarnar geta orðið alvarlegar fyrir bæði líkamlega og sálræna heilsu. Áfall, eins og ofbeldi, getur virkað eins og innrás í taugakerfi líkamans. Ef ekkert er unnið úr því geta áföllin sest þar að – því líkaminn man. Við höfum mismikið þol fyrir áföllum og streitu. Þegar barn verður fyrir ofbeldi er það skynjað sem ógn og getur raskað jafnvægi taugakerfisins. Ef áföll setjast að í taugakerfinu er mikilvægt að vinna úr þeim og ná aftur jafnvægi. Það er ekki alltaf nóg að tala um reynsluna; oft þarf dýpri vinnu með líkamann og þau áhrif sem hafa fest rætur þar. Líkaminn tjáir nefnilega það sem við getum ekki sett í orð. Ef barn nær ekki slökun og jafnvægi í taugakerfinu getur það misst svefn og þróað með sér ótta, kvíða og óöryggi. Einnig geta komið fram einkenni þunglyndis og áfallastreitu. Í sumum tilfellum getur barn þróað með sér fíknivanda eða leiðst út í afbrot. Þá geta einnig komið fram flókin líkamleg einkenni, sjálfskaðandi hegðun og í alvarlegustu tilvikum sjálfsvíg. Í stuttu máli má segja að barn sem verður fyrir kynferðislegu ofbeldi verði fyrir áfalli sem getur valdið streitu og jafnvel alvarlegri áfallastreitu. Streita getur bælt ónæmiskerfið, sem er vörn líkamans gegn sjúkdómum, bólgum og sýkingum. Það er því afar mikilvægt að koma í veg fyrir að börn verði fyrir kynferðislegu ofbeldi, eða veita aðstoð ef ekki tekst að koma í veg fyrir það. Þannig má draga úr líkum á sálrænum, líkamlegum og félagslegum afleiðingum, bæði strax og síðar á lífsleiðinni. Engin ein leið hentar öllum og því er ekki hægt að bjóða eina tegund meðferðar fyrir þolendur ofbeldis. Hver og einn þarf að finna sína leið. Því er mikilvægt að bjóða upp á fjölbreytt úrræði fyrir börn, enda geta ekki öll börn talað um reynslu sína. Það er sérstaklega mikilvægt að bjóða upp á úrræði þar sem unnið er með líkamann, þar sem áföll sitja oft í taugakerfinu. Mikilvægt er að hjálpa barninu að komast út úr því varnarviðbragði sem það er fast í – hvort sem það er að flýja, berjast, frjósa eða þóknast. Í dag er lokadagur í vitundarvakningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um kynferðisofbeldi gegn börnum, undir yfirskriftinni Ég lofa. Við verðum að taka ábyrgð og lofa börnum að gera betur. Ég set því fram loforðin sjö fyrir börnin: 1. Ég lofa að fylgjast með 2. Ég lofa að spyrja 3. Ég lofa að hlusta 4. Ég lofa að trúa 5. Ég lofa að skipta mér af 6. Ég lofa að segja frá 7. Ég lofa að bregðast við Höfundur er móðir, hjúkrunarfræðingur, doktor, prófessor, fyrrverandi lögreglukona og höfundur bókarinnar Áfall – hvað svo Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynbundið ofbeldi Kynferðisofbeldi Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar