Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Kjartan Kjartansson skrifar 29. apríl 2026 14:52 Scott O'Neill, forstjóri LIV, með pútter í hönd á LIV-móti í Sádi-Arabíu fyrr á þessu ári. Sádar virðast undirbúa að taka vasapeningana af LIV á allra næstunni. AP/Charles Laberge/LIV Golf Móti LIV-golfmótaraðarinnar í Lúisíana í Bandaríkjunum hefur verið frestað og óvíst er hvort af því verði. Talið er að sádiarabískir bakhjarlar mótaraðarinnar ætli að ætta að halda henni uppi á næstunni.
Forsvarsmenn LIV og Lúisíanaríkis staðfestu að mótinu sem átti að fara fram í New Orleans síðustu helgina í júní hefði verið frestað og unnið væri að því að finna því nýjan tíma. AP-fréttastofan segir að þeir hafi þó ekki gengið svo langt að fullyrða að mótið færi fram. Eftir að tilkynnt var um frestunina hélt LIV því fram að ákvörðunin hefði meðal annars verið tekin til þess að forðast sumarhita í Lúisíana á þessum árstíma. Golf Digest segir að mótaröðin hafi lagt til að halda mótið í haust en minna í sniðum og með takmarkaðan fjölda keppenda. Tíðindin koma fast á hæla frétta í síðustu viku um að þjóðarsjóður Sádi-Arabíu ætli sér að hætta að fjármagna LIV. Slúðrað var um að keppni á mótaröðinni gæti jafnvel stöðvast á miðju tímabili en Scott O'Neill, forstjóri LIV, fullvissaði kylfinga og starfsfólk um að tímabilið yrði klárað. Tilkynnt var um LIV-mótið í New Orleans í fyrra. Ríkisyfirvöld skuldbundu sig þá til þess að greiða LIV fimm milljónir dollara og fjármagna endurbætur á Batou Oaks-vellinum þar sem mótið átti að fara fram. Ríkið hafði þegar greitt LIV milljón dollara sem verða nú endurgreiddir. Hallað hratt undan fæti O'Neill hefur talað um að jafnvel þó að Sádar hætti að fjármagna LIV muni hún halda göngu sinni áfram. Hann ætli að leita nýrra fjárfesta. Sú leit gæti reynst þrautin þyngri enda er rekstur LIV langt frá því að vera sjálfbær. Hann hefur sjálfur sagt að það gæti tekið áratug fyrir hana að skila hagnaði. Sádar stofnuðu LIV til höfuðs PGA-mótaröðinni árið 2021 og löðuðu nokkra af helstu stjörnum golfsins til sín með boði um gull og græna skóga. Um tíma stóð til að LIV, PGA-mótaröðin og evrópska DP-mótaröðin rynnu saman en ekkert varð úr því. Áhorf á mótaröðina hefur verið afar takmarkað, bæði í sjónvarpi og á keppnisvöllunum sjálfum, ef frá eru talin mót í Ástralíu og Suður-Afríku sem hafa verið vel sótt. Verulega hefur fjarað undan LIV á síðustu árum. Nokkrar af helstu stjörnunum eru teknar að reskjast og enginn kylfingur á heimsmælikvarða hefur skipt yfir frá því að Jon Rahm gerði það óvænt árið 2023. Mótaröðin varð svo fyrir blóðtöku þegar risamótsmeistararnir Brooks Koepka og Patrick Reed sneru aftur á PGA-mótaröðina fyrr á þessu ári. Til að bæta gráu ofan á svart hefur ekkert gengið að endurnýja samning LIV við Bryson DeChambeau, einn vinsælasta kylfing heims. Ólíklegt er að O'Neill takist að finna fjárfesti sem er til í að fjármagna nýjan risasamning við DeChambeau á mótaröð sem ber sig ekki fjárhagslega án sádiarabískra olíupeninga.
LIV-mótaröðin Golf Sádi-Arabía Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Tveir kylfingar jafna besta hringinn á risamóti Stuttu pútti frá besta hring sögunnar „Of mörg heimskuleg mistök“ Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Vonar að hann fái að halda áfram að reykja „Er það ekki fullkominn dagur? Golf og fótbolti“ „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ „Ég er svo lélegur í golfi“ Ragnhildur hlaut hálfa milljón í þriðja sæti í Englandi Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Hvorki Haraldur né Gunnlaugur fara á Opna breska Sjá meira