Viðskipti innlent

Af­koma í sam­ræmi við á­ætlanir hjá Símanum

Lovísa Arnardóttir skrifar
María Björk framkvæmdastjóri Símans. 
María Björk framkvæmdastjóri Símans. 

Tekjur Símans á fyrsta ársfjórðungi 2026 námu 7,2 milljörðum samanborið við 7,1 milljarð á sama tímabili 2025 og hækkuðu um 1,1 prósent. Tekjur af fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu stóðu nánast í stað á milli ára.

Tekjur af auglýsingamiðlun námu 607 m.kr. samanborið við 563 m.kr. á sama tímabili í fyrra og hækkuðu um 7,8 prósent samkvæmt ársfjórðungsuppgjöri Símans. Þar kemur einnig fram að vörusala hafi aukist um 8,4 prósent á milli ára.

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í samræmi við áætlanir og ber merki um þann stöðugleika sem einkennir grunnrekstur Símans. Þrátt fyrir að við höfum séð fækkun viðskiptavina í fjarskiptum og sjónvarpi á haustmánuðum voru tekjur af kjarnavörum Símans óbreyttar milli ára, en aftur á móti hækkaði kostnaðarverð seldra vara milli ára, einkum vegna vísitölutengds kostnaðar innviðabirgja og kjarasamningsbundinna launahækkana,“ segir María Björk Einarsdóttir forstjóri í tilkynningu um uppgjörið sem var birt í gær.

Hún segir ánægjulegt að sjá góðan vöxt í auglýsingatekjum og tekjum af fjártækni milli ára,

„Það hefur verið lykiláhersla síðustu misseri að fjölga tekjustoðum félagsins. Sagan hefur sýnt okkur að tekjur af fjarskiptarekstri halda sjaldnast í við verðbólgu og afkomubati síðustu ára hefur því verið drifinn áfram af aukinni skilvirkni í rekstrinum. Áframhald þar á mun byggja á aukinni nýtingu gervigreindar á öllum sviðum rekstursins,“ segir María.

Fjölga tekjustoðum

Hún segir að samhliða því sé verið að fjölga tekjustoðum og nýta þannig innviði og styrkleika félagsins enn betur.

„Á síðustu mánuðum höfum við kynnt metnaðarfulla vegferð umbreytingar yfir í fjölbreytta stafræna þjónustusamstæðu undir merkjum Ása. Sterkt sjóðstreymi og hófleg skuldsetning gerir félagið vel í stakk búið fyrir ytri vöxt, og á fjórða ársfjórðungi síðasta árs tilkynntum við um kaup á Greiðslumiðlun Íslands, OK og Öryggismiðstöð Íslands. Þessi félög eiga það öll sammerkt að bjóða upp á stafrænar lausnir í fremstu röð og búa yfir víðtækum viðskiptasamböndum á fyrirtækjamarkaði,“ segir María.

Í mars hafi svo verið tilkynnt um undirritun skilmálaskjals um möguleg kaup Símans á útvarps- og vefmiðlum Sýnar.

„Þar undir eru vandaðir miðlar með mikla útbreiðslu og öflugan mannauð. Verði af viðskiptunum mun sameinað miðlafyrirtæki undir móðurfélaginu Ásum verða í góðri stöðu til að veita framúrskarandi þjónustu í síbreytilegu rekstrarumhverfi.“

Horfur góðar og afkomuspá óbreytt

María segir einnig að einstaklega vel heppnuð yfirtaka á Billboard, markviss uppbygging efnisveitunnar og sú áhersla sem þau hafi lagt á þróun auglýsingatækni, hafi mótað sterkan grunn til að byggja slíka einingu upp með góðum árangri.

Horfur fram undan í rekstrinum eru góðar og afkomuspáin er óbreytt. Við höfum séð viðsnúning í fjarskiptum og sjónvarpi þar sem viðskiptavinum er byrjað að fjölga á ný eftir brottfall á haustmánuðum. Þá er áfram sterk sala í auglýsingum, meðal annars í tengslum við sveitastjórnarkosningar, þar sem bæði sjónvarps- og umhverfismiðlar Símans bjóða upp á landfræðilega markmiðaðar auglýsingar sem henta sérstaklega vel fyrir stjórnmálaflokka sem vilja nýta auglýsingafé sitt sem best.”

Í tilkynningu um uppjgörið kemur einnig fram að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) hafi numið 1.362 m.kr. á 1F 2026 og hækkaði um 90 m.kr. eða 7,1 prósent frá sama tímabili 2025. EBITDA-hlutfallið er 18,8 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026 en var 17,7 prósent á sama tímabili 2025. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 416 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2026 samanborið við 189 m.kr. á sama tímabili 2025.

Aðlagað fyrir gjaldfærslu vegna dómsmáls nam EBITDA 1.439 m.kr. (19,9%) á 1F 2026 samanborið við 1.733 m.kr. á sama tímabili 2025. EBIT, aðlagað fyrir sektar- og skaðabótagreiðslum ásamt afskriftum óefnislegra eigna, nam 528 m.kr. (7,3%) samanborið við 677 m.kr. á sama tímabili 2025.

Hrein fjármagnsgjöld námu 180 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 en námu 321 milljón á sama tímabili 2025. Fjármagnsgjöld námu 462 milljónum króna, fjármunatekjur voru 244 milljónir króna og gengishagnaður nam 38 milljónum. Hagnaður á fyrsta ársfjórðungi 2026 nam 171 milljón samanborið við 188 milljóna króna tap á sama tímabili 2025. Hagnaður á hlut nam 0,07 kr. á fjórðungnum.

Í tilkynningu kemur einnig fram að eiginfjárhlutfall Símans var 35,4 prósent í lok fyrsta ársfjórðungs 2026 og eigið fé 16,7 milljarðar króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×