Að byggja bæ – eða samfélag? Herdís Anna Ingimarsdóttir skrifar 28. apríl 2026 15:51 Garðabær er einn þeirra staða á landinu þar sem vöxtur er gríðalegur. Það er jákvætt og segir sína sögu um að bærinn er eftirsóknarverður. En hraður vöxtur kallar líka á skýrar ákvarðanir. Spurningin er einföld: erum við að byggja samfélag – eða bara fleiri hús? Tengsl verða ekki til af sjálfu sér Í dag er auðvelt að lifa lífinu án mikilla tengsla við nærsamfélagið. Við förum á milli staða, sinnum okkar daglega amstri og hittum síður fólk úr nærumhverfinu. Það er skiljanlegt. En til lengri tíma veikir það samfélagið. Sterk samfélög verða ekki til af sjálfu sér. Þau verða til þegar við tökum meðvitaðar ákvarðanir um að skapa rými fyrir fólk til að mætast, kynnast og tengjast. Skipulag snýst líka um mannlíf Við hugsum oft um skipulag sem tæknilegt verkefni: hús, götur, samgöngur og þjónustu. En ef við ætlum að byggja samfélag sem virkar, þurfum við að hugsa stærra. Rými fyrir menningu, viðburði og daglegt líf er ekki aukaatriði. Það er forsenda þess að tengsl myndist. Ef við gerum ekki ráð fyrir slíku rými frá upphafi, þá verður það einfaldlega ekki til. Menning er ekki bara stórir viðburðir. Hún er líka litlu augnablikin þegar fólk hittist, kynnist og finnur sig heima hvort sem er á hverfishátíð eða í kringum sundlaugar og bókasöfn. Þetta eru staðirnir og stundirnar sem skapa tilfinningu fyrir því að tilheyra. Og það er einmitt sú tilfinning sem skilur á milli bæjar og samfélags. Skýr sýn skiptir máli Í ört vaxandi bæ eins og Garðabæ er hættan sú að uppbyggingin fari fram hraðar en samfélagið nær að fylgja eftir - nema við tökum meðvitaðar ákvarðanir. Hér liggur val: að láta vöxtinn leiða okkur, eða að stýra honum með skýrri sýn. Fyrir okkur í Viðreisn snýst það um ábyrga forgangsröðun og langtímahugsun. Að byggja ekki bara meira, heldur betur. Að tryggja að uppbygging styðji við mannlíf og tengsl - ekki grafa undan þeim. Garðabær hefur alla burði til að vera hlýr, lifandi og tengdur bær. En það gerist ekki af sjálfu sér. Það gerist þegar við veljum að setja samfélagið í forgang. Höfundur er verkefnastjóri og markþjálfi, og í 10. sæti á lista og stjórnarkona Viðreisnar í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Garðabær er einn þeirra staða á landinu þar sem vöxtur er gríðalegur. Það er jákvætt og segir sína sögu um að bærinn er eftirsóknarverður. En hraður vöxtur kallar líka á skýrar ákvarðanir. Spurningin er einföld: erum við að byggja samfélag – eða bara fleiri hús? Tengsl verða ekki til af sjálfu sér Í dag er auðvelt að lifa lífinu án mikilla tengsla við nærsamfélagið. Við förum á milli staða, sinnum okkar daglega amstri og hittum síður fólk úr nærumhverfinu. Það er skiljanlegt. En til lengri tíma veikir það samfélagið. Sterk samfélög verða ekki til af sjálfu sér. Þau verða til þegar við tökum meðvitaðar ákvarðanir um að skapa rými fyrir fólk til að mætast, kynnast og tengjast. Skipulag snýst líka um mannlíf Við hugsum oft um skipulag sem tæknilegt verkefni: hús, götur, samgöngur og þjónustu. En ef við ætlum að byggja samfélag sem virkar, þurfum við að hugsa stærra. Rými fyrir menningu, viðburði og daglegt líf er ekki aukaatriði. Það er forsenda þess að tengsl myndist. Ef við gerum ekki ráð fyrir slíku rými frá upphafi, þá verður það einfaldlega ekki til. Menning er ekki bara stórir viðburðir. Hún er líka litlu augnablikin þegar fólk hittist, kynnist og finnur sig heima hvort sem er á hverfishátíð eða í kringum sundlaugar og bókasöfn. Þetta eru staðirnir og stundirnar sem skapa tilfinningu fyrir því að tilheyra. Og það er einmitt sú tilfinning sem skilur á milli bæjar og samfélags. Skýr sýn skiptir máli Í ört vaxandi bæ eins og Garðabæ er hættan sú að uppbyggingin fari fram hraðar en samfélagið nær að fylgja eftir - nema við tökum meðvitaðar ákvarðanir. Hér liggur val: að láta vöxtinn leiða okkur, eða að stýra honum með skýrri sýn. Fyrir okkur í Viðreisn snýst það um ábyrga forgangsröðun og langtímahugsun. Að byggja ekki bara meira, heldur betur. Að tryggja að uppbygging styðji við mannlíf og tengsl - ekki grafa undan þeim. Garðabær hefur alla burði til að vera hlýr, lifandi og tengdur bær. En það gerist ekki af sjálfu sér. Það gerist þegar við veljum að setja samfélagið í forgang. Höfundur er verkefnastjóri og markþjálfi, og í 10. sæti á lista og stjórnarkona Viðreisnar í Garðabæ.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar