Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 27. apríl 2026 21:48 Danielle Rodriguez var öflug í liði Njarðvíkur í kvöld. vísir/Hulda Margrét Þriðji leikur undanúrslita einvígis Njarðvíkur og Grindavíkur fór fram í IceMar-höllinni í kvöld. Grindavík leiddi fyrir leik 2-0 og gátu tryggt sig inn í úrslitin með sigri í kvöld á meðan Njarðvík var með bakið upp við vegg. Njarðvík mætti með krafti út í þennan leik og náði forystu sem þær létu aldrei af hendi og fóru með sex stiga sigur 94-88. Leikurinn byrjaði nokkuð jafnt þar sem liðin eltu hvort annað eins og skugginn. Njarðvík náði fyrsta áhlaupinu sem Grindavík náði ekki að svara. Á meðan boltinn var að leka ofan í fyrir Njarðvík var hann að skrúfast upp úr fyrir Grindavík og Njarðvík var með fjórtán stiga forskot eftir fyrsta leikhluta 26-12. Annar leikhluti var jafn og lítið sem skildi á milli liðana. Grindavík setti fyrstu fjögur stigin og svaraði Njarðvík með næstu fjórum. Það var mikil barátta á vellinum og þurftu liðin að hafa vel fyrir sínum stigum. Þegar liðin gengu til hálfleiks var staðan 44-31 fyrir Njarðvík. Sanngjörn forysta fyrir þær grænu inn í hlé. Njarðvík mætti mun kraftmeiri út úr hálfleiknum og náði þegar best lét 21 stiga forskoti í leikhlutanum. Þær grænu léku á alls oddi og var ekkert sem benti til annars en að þær væru að hlaupa með leikinn. Grindavík náði frábærum lokaspretti í leikhlutanum og saxaði vel á forystu Njarðvíkur. Þær gulu náðu að koma þessu niður í átta stiga leik áður en leikhlutinn var úti 69-61. Þórey Tea Þorleifsdóttir opnaði fjórða leikhluta á þrist fyrir Grindavík og fann maður smá skjálfta læðast að Njarðvík á meðan augnablikið var algjörlega með Grindavík. Njarðvík náði að hrista af sér skjálftan og tók stjórn á leiknum aftur og létu ekki af stjórn það sem eftir lifði og hélt Grindavík í hæfilegri fjarlægð. Það fór svo að Njarðvík tryggði sér leik fjögur með frábærum sex stiga sigri á Grindavík 94-88. Liðin mætast á föstudaginn kemur aftur í Grindavík. Atvik leiksins Hulda María Agnarsdóttir drepur augnablik Grindavíkur með þrist úr horninu í byrjun fjórða leikhluta. Gríðarlega mikilvægur þristur fyrir Njarðvíkinga á þessum tímapunkti. Stjörnur og skúrkarBrittany Dinkins var að vanda stigahæst í liði Njarðvíkur með 31 stig. Hún gaf auk þess sex stoðsendingar og tók sjö fráköst.Dani Rodriguez átti einnig öflugan leik og setti mikilvæg stig á töfluna þegar mest var undir. Hún endaði með 19 stig, tók sex fráköst og gaf sex stoðsendingar að auki.Hjá Grindavík var Ellen Nyström stigahæst með 23 stig ásamt Abby Beeman.DómararnirKristinn Óskars, Gunnlaugur Briem og Jakob Árni sáu um dómgæsluna í þessum leik. Alls ekki gallalaus frammistaða hjá tríóinu í kvöld en þó ekkert sem hafði úrslitaáhrif.Stemingin og umgjörðÞað var vel mætt í IceMar-höllina í kvöld og stutt vel við bæði lið. Það myndaðist flott stemning eins og við er að búast í úrslitakeppninni.ViðtölEinar Árni Jóhannsson þjálfari NjarðvíkurHulda/Vísir„Treysti því að þessi skari sem að mætti hér í kvöld fylgi okkur í Grindavík“„Virkilega ánægður með liðið. Hrikalega ánægður með fólkið okkar, stemninguna og bara treysti því að þessi skari sem að mætti hér í kvöld fylgi okkur í Grindavík og ýti þessu hingað heim í leik fimm“ sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur eftir sigurinn í kvöld.„Mér fannst við setja góðan tón, ólíkt fyrri tveim leikjum með öflugum varnarleik í fyrri hálfleik og það er svona það sem stendur upp úr fyrir mér“„Sóknarlega þá bara mest megnis mjög gott. Það koma kaflar og við erum að spila á móti frábæru liði og þær gera hrikalega vel á okkur í bæði seinni hluta þriðja leikhluta og eru að minnka þetta niður áfram í fjórða“„Við gefum upp of mikið af stigum í seinni hálfleik heilt yfir“ sagði Einar Árni Jóhannsson.Anton Brink„Þær eru bara hörku lið sem að voru ekki tilbúnar til þess að detta út“„Byrjar virkilega illa. Við erum ekki að hitta og lengi til baka og þar svolítið eiginlega er bara leikurinn“ sagði Þorleifur Ólafsson svekktur eftir tapið í kvöld.„Það var mikill kraftur í Njarðvíkingunum við fyrstu sýn. Þær voru bara virkilega tilbúnar og voru nátturlega með bakið upp við vegg og sýndu að þær eru bara hörku lið sem að voru ekki tilbúnar til þess að detta út“„Það var pínu kraftleysi í okkur en samt ekki. Þetta var svolítið skrítinn leikur upp á það. Við byrjuðum bara á hælunum en samt ekki“„Þetta er bara eitthvað sem ég þarf að skoða“ sagði Þorleifur Ólafsson. Bónus-deild kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík
Uppgjörið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti
Uppgjörið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti