Í skólanum er skemmtilegt að vera - eða hvað? Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar 27. apríl 2026 08:41 Þegar börn koma heim úr skólanum spyrja gjarnan foreldrar/forráðamenn og jafnvel ömmur og afar hvort ekki hafi verið gaman í skólanum. Mörg börn svara af hjartans einlægni að það hafi verið mjög gaman en hluti nemenda getur alls ekki svarað þeirri spurningu játandi. Í lögum um grunnskóla segir að grunnskólaganga hvers barns á Íslandi sé skylda og gefin er út aðalnámskrá sem er forskrift að þeirri skólagöngu. Í aðalnámskrá grunnskóla segir að mæta skuli hverjum nemanda miðað við getu í námi og skólastarfi. Þetta hljómar einfalt og vissulega er stefnan um skóla fyrir alla falleg og góð. Við viljum hafa skólann fyrir öll börn. Eitt af því fallega við lífið er að mennirnir eru misjafnir á hvaða aldri sem þeir eru og að sama skapi eru þarfirnar ólíkar. Það er því snúið fyrir kennara að koma til móts við alla nemendur með mismunandi getu og þarfir þrátt fyrir að þorri kennara búi yfir sterkum vilja, útsjónarsemi og þrautseigju og þrátt fyrir mikið vinnuframlag. Kennarar eru settir í þá stöðu að sinna hlutverkum í skólunum sem væri betur borgið í höndum annarra fagstétta á borð við sálfræðinga, atferlisfræðinga, talmeinafræðinga og fleiri fagstétta sem sinna börnum vitsmunalega, líkamlega og andlega. Orka og athygli kennara ætti að vera óskipt í að mæta námslegum þörfum mismunandi nemenda en staðan er ekki þannig í dag. Í skólunum okkar er ört stækkandi fjársjóður í nemendum af erlendum uppruna og snúbúum (íslenskir ríkisborgarar fæddir og uppaldir erlendis og snúa heim). Þessir nemendur hafa íslensku sem annað tungumál (ÍSAT). Það er mikil áskorun fyrir nemendur sem ekki tala íslensku að fóta sig í fjölbreyttri flóru nemenda og jafnvel nýrri og ólíkri menningu. Slíkar aðstæður kalla á mikinn og víðtækan stuðning. Í aðalnámskrá grunnskóla er að finna stigskipta viðmiðunarstundaskrá í fjórum stigum fyrir nemendur sem hafa íslensku sem annað tungumál. Það þýðir að skólum ber lögum samkvæmt að koma til móts við þá nemendur eins og aðra. ÍSAT kennsla er í grunnskólum Akureyrar og er það vel og ávinningurinn af slíkri kennslu er ótvíræður. En betur má ef duga skal og þarf verulega að auka tímafjölda í íslensku fyrir ÍSAT nemendur okkar. Vellíðan er forsenda fyrir námi. Þeim nemendum sem ekki líður vel er hættara á að missa fótana og skólagangan verður bara ekkert skemmtileg. Fái nemendur þá aðstoð sem þeir þurfa snemma á skólagöngunni eru meiri líkur á ánægjulegri skólagöngu. Það gefur auga leið að snemmtæk íhlutun er það mikilvægasta sem skólakerfið okkar þarf á að halda. Ef við ráðum til að mynda talmeinafræðinga inn í leik- og grunnskóla sem aðstoða nemendur strax á máltökualdri við að ná tökum á hljóðum og tali auðveldar það nemendum að læra að lesa. Fái nemendur með hegðunarörðugleika aðstoð frá atferlisfræðingi til að ná tökum á hegðun sinni auðveldar það öll samskipti þegar fram í sækir. Lögfesta ætti stöðugildi fyrir sálfræðinga inn í alla skóla því lífið er eins og það er, fullt af áskorunum, ekki síst fyrir óharðnaða einstaklinga. Ef sálfræðingar væru inni í skólunum ætti það að létta á almenna geðheilbrigðiskerfinu og leysa þar með einhvern hluta vanda heilbrigðiskerfisins. Lögum samkvæmt eigum við að koma til móts við alla nemendur á leik- og grunnskólaaldri. Mætum ÖLLUM nemendum okkar með fjölbreyttri sveit sérfræðinga á heimavöllum nemenda - SKÓLUNUM. Höfundur skipar annað sæti á lista Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar