Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin skrifar 26. apríl 2026 07:02 Við komum í heiminn til að þjóna hvert öðru og hugsa um náungann. Ekki til að ræna hvert öðru fjármunum og tíma eins og því miður er allt of algengt í okkar nútíma samfélagi í gegnum fjármunakerfið. Við borgum of mikið til yfirvalda og banka með sköttum og kostnaði við lántöku. Maður myndi ætla að þessir fjármuni fari til að standa undir þjónustu við fólkið í landinu en stór hluti þeirra virðist hverfa inn í rangala skrifræðis. Ég sé fyrir mér að þessum fjármunum verði í ríkari mæli varið í að þjóna fólkinu okkar. Mér þykir vænt um fólk, kenni hugleiðslu og starfa á Grund. Hvernig við hugsum um gamla fólkið okkar ætti að vera hið gullna viðmið. Auka starfa minna á Grund er ég einnig frumkvöðull og stofnandi Flow.is. Mig hefði aldrei grunað hvað það breytti mér mikið á öllum sviðum að vinna á Grund. Stefán Árni eiginmaður minn og kvikmyndagerðarmaður hóf umönunarstörf á minni Grund og litlu Grund árið 2025. Eftir það kom hann heim léttari í lundu en áður, fullur af ást og auðmýkt. Þá hugsaði ég með mér að þetta væri eitthvað sem mig langaði til að taka þátt í. Dreif mig í að skrifa umsóknarbréf og var mjög fljótlega boðuð í viðtal. Elísabet Bogadóttir Berndsen forstöðukona sagði mig falla mjög vel inn í starfið á Grund. Ég átti í fyrstu erfitt með að skilja hvers vegna hún sagði þetta þar sem mér fannst starfið í fyrstu yfirþyrmandi en var einnig spent að læra. Á hverri dag- eða kvöldvakt aðstoðum við sem sinnum ömmuumönun hjúkrunarfólk í þjóna öldruðum íbúum við helstu þarfir þeirra, hvort sem það er að klæða eða hátta sig, fara í sturtu og svo framvegis. Fyrirmyndaheimilið Grund Kæruleysisleg mistök gætu haft alvarleg áhrif á líf fólksins. Sjálf hafði ég fylgst með ömmum mínum og öfum þegar þau fóru á öldrunarheimili í Bandaríkjunum. Mér leið ekki vel með sum þeirra heimila vegna þess að þar skorti að mínu mati ákveðinn þátt í þjónustuna og þau standast engan veginn samanburð við Grund. Heimilið á Grund er til fyrirmyndar, þar sem bæði starfsfólk og heimilisfólk er ánægt og allir leggja sig fram að gera heimilislífið þar ánægjulegt og uppbyggilegt. Stefán eiginmaður minn kynntist starfinu á Grund í gegnum Yrsu Fannberg kvikmyndagerðarkonu sem gerði heimildarmyndina Jörðin undir fótum okkar sem fjallar um lífið á Grund og var nýlega sýnd í ríkissjónvarpinu. Yrsa hefur unnið á Grund í fimmtán ár. Það er nánast eins og dáleiðandi hugleiðsla um tilgang lífsins að horfa á myndina. Lokakafli lífsins er að sjálfsögðu jafn mikilvægur og upphafskaflinn en í nútíma samfélagi er öldruðum oft ýtt út í horn og þau vanrækt. Grund er staðsett í hjarta Reykjavíkur. Þar er mikið um að vera alla daga og þangað liggur stöðugur straumur gesta. Þar ríkir heimilislegur andi og séð fyrir öllum þörfum heimilsfólks með viðveru starfsfólks allan sólarhringinn. Á Grund er öflug og vönduð þjónusta sem skapar öryggiskennd. Svíf heim létt í spori og með song í hjarta Það krefst andlegs, tilfinningalegs og líkamlegs styrks og skuldbindingar að sinna störfum sem þessum, sem um leið gerir mann sjálfan sterkari á öllum sviðum. Fólk gefur allt í augnablikið og fær það margfalt til baka með góðvild, væntumþykju, þakklæti og visku sem mannleg samskipti gefa. Mér finnst ég svífa heim af vöktunum á Grund, létt í spori og með söng í hjarta og alltaf með eitthvað dýrmætt til að deila með fjölskyldunni þegar heim er komið. Við fögnum litlum sigrum á hverjum degi en auðvitað eru líka sorgarstundir. Lífið er stutt. Við horfum á eftir ástvinum kveðja þennan heim fyrir annan og á sama tíma erum við hvött til að lifa lífinu til fulls. Þegar við fylgjumst með síðasta kaflanum í lífi fólks og gefum af öllu okkar hjarta fáum við tækifæri til að blómstra. Fjölbreytt flóra starfsfólks á Grund Starfsfólkið á Grund hefur fjölbreytta lífsreynslu, faglega reynslu og er af ýmsum þjóðernum. Þetta er dásamleg blanda umönunarfólks sem allt talar íslensku og leggur sig fram um það. Ég er full aðdáunar hvað þetta ólíka fólk að uppruna er duglegt. Eins og til dæmis par frá Íran sem talar eingöngu íslensku við hvort annað og náði tökum á tungumálinu á aðeins einu ári eftir að þau komu til landsins. Eða konan frá Filipseyjum sem hefur fallega móðurlega framkomu við heimilisfólk jafnt sem samverkafólk. Mér er daglega hælt fyrir íslenskuna mína sem hvetur mig áfram og á hverjum degi læri ég ný orð og orðatiltæki, sem mér þykir einstaklega vænt um. Það er svo heillandi hvernig gamla fólkið talar. Því þykir gaman að horfa á sjónvarp og það er dásamlegt að hlusta á ummæli þeirra um það sem er að gerast á skjánum, allt litlir gullmolar. Ég var svo lánsöm að fá að horfa á Jörðin undir fótum okkar þegar myndin var frumsýnd á RÚV með heimilisfólkinu á Grund, þar sem við horfðum á vini okkar sem sum höfðu kvatt þennan heim. Það var áhrifamikið. Heimilisfólkið er ömmur og afar, langömmur og langafar, þau eru mæður og feður landsins okkar. Okkar besta fólk. Eldra fólkið okkar á skilið alla þá ást og umönun sem við getum gefið því. Það er dásamlegt að fá að vinna með gamla fólkinu okkar á Grund, þessu heimili sem nú fagnar aldar afmæli sínu. Megi Grund fá að blómstra í önnur hundrað ár. Ég er upphaflega frá Palo Alto í Kaliforníu og hef búið með fjölskyldu minni á Íslandi frá árinu 1995. Ég er framkvæmdastjóri og meðstofnandi á www.flow.is. Með framboði mínu í 9. Sæti á lista Flokks fólksins í Reykjavík vil ég styðja Guðmund Inga Þóroddsson heilshugar til forystu fyrir Flokk fólksins í Reykjavík vegna þess að hann er einlægur baráttumaður fyrir velferð og þjónustu og þjónar sjálfur þeim sem eiga undir högg að sækja. Höfundur er í 9. sæti á lista Flokks fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun