Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Birgir Olgeirsson skrifar 24. apríl 2026 21:15 Málið hófst með aðgerðum lögreglu við Sundahöfn 13. apríl síðastliðinn þegar hald var lagt á 14 lítra af amfetamín basa. Vísir/Vilhelm Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á ætluðum innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með gámaflutningaskipinu Dettifossi. Lögregla hefur ráðist í húsleit hjá tveimur þeirra.
Málið kom upp í Sundahöfn 6. apríl þegar lögregla og tollgæsla fóru um borð í Dettifoss. Tveir sakborninganna eru starfsmenn Eimskips og sitja í gæsluvarðhaldi til 28. apríl. Þriðji maðurinn, sem hefur verið í haldi frá upphafi málsins, situr inni til 5. maí. Sá fjórði var úrskurðaður í gær í gæsluvarðhald til 30. apríl. Húsleitin var gerð hjá manninum sem situr inni til 5. maí og þeim sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. apríl. Í fyrri málum hefur lögregla miðað við að úr einum lítra af amfetamínbasa megi vinna um fjögur kíló af fíkniefnum. Sé sama viðmið lagt til grundvallar gætu fjórtán lítrar numið um 56 kílóum af tilbúnu efni. Miðað við fimm þúsund krónur grammið væri götuvirðið um 280 milljónir króna. Málið kemur upp eftir að lögregla hefur stöðvað fjölda tilrauna til fíkniefnainnflutnings síðasta árið. Á síðasta ári var lagt hald á metmagn fíkniefna hér á landi, þar á meðal 106 kíló af kókaíni. Miðað við 20 til 25 þúsund krónur grammið gæti götuvirði þess magns verið frá rúmlega tveimur milljörðum upp í 2,6 milljarða króna. Stór mál hafa einnig komið upp á þessu ári. Í einu þeirra hefur verið greint frá um 45 kílóum af kókaíni. Með sömu forsendum gæti það jafngilt 900 milljónum til rúmlega 1,1 milljarðs króna á götumarkaði. Rannsókn Dettifossmálsins beinist nú meðal annars að því hvernig efnin komust um borð í skipið, hverjir komu að flutningnum og hvort málið teygi sig víðar en til þeirra fjögurra sem nú sitja í gæsluvarðhaldi.
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Lögreglumál Smygl Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira