Viðskipti innlent

Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar

Kjartan Kjartansson skrifar
Íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum. Bæjaryfirvöld sömdu við World Class um rekstur og uppbyggingu heilsuræktar þar þrátt fyrir að útboð þeirra hefði verið kært öðru sinni.
Íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum. Bæjaryfirvöld sömdu við World Class um rekstur og uppbyggingu heilsuræktar þar þrátt fyrir að útboð þeirra hefði verið kært öðru sinni. Vestmannaeyjabær

Kröfu fulltrúa Sporthallarinnar um að útboð Vestmannaeyjabæjar um líkamsræktarstöð yrði stöðvað tímabundið var hafnað vegna þess að bærinn samdi við World Class áður en kærunefnd komst að niðurstöðu. Nefndin hefur kæru vegna útboðsins enn til skoðunar.

Vestmannaeyjabær auglýsti rekstur og uppbyggingu heilsuræktarstöðvar við íþróttamiðstöð bæjarins öðru sinni í mars. Bæjaryfirvöld féllu frá fyrra útboði áður en kærunefnd úrskurðaði það ólöglegt.

Fulltrúar Sporthallarinnar, sem gerðu tilboð í verkefnið, kærðu seinna útboðið og kröfðust þess að það yrði stöðvað tímabundið á meðan kærunefnd útboðsmála kæmist að niðurstöðu. Töldu þeir útboðið sérsniðið að World Class sem bærinn gerði tímabundinn samning við í fyrra.

Í útboðinu var meðal annars gerð krafa um að væntanlegir rekstraraðilar hefðu að minnsta kosti fimm þúsund áskrifendur og hefðu einn milljarð króna í eigið fé. Þá var þeim metið til tekna að reka stöðvar víðar um landið. Kærendur töldu World Class eina fyrirtækið í heiminum sem uppfyllti öll þessi skilyrði.

Ekki hægt að ógilda að breyta samningnum

Kærunefndin hafnaði kröfu kærendanna í síðustu viku, en þó ekki á efnislegum forsendum.

Taldi nefndin sig ekki hafa annarra kosta völ í ljósi þess að Vestmannaeyjabær hefði haldið áfram með útboðið eftir að kæran barst og gert samning við World Class. Ekki væri hægt að fella þann samning úr gildi eða breyta honum jafnvel þótt framkvæmd útboðsins eða samningsgerðin hefði verið ólögmæt.

Aðrar kröfur kærenda, þar á meðal um að skilyrðin útboðsins sem þeir töldu hygla World Class yrðu felld úr gildi, eru áfram til skoðunar á kærunefndinni.

Tóku tvo daga í það sem átti að taka fimm

Í ákvörðun nefndarinnar kemur fram Vestmannaeyjabæ hafi verið tilkynnt um kæruna sama dag og hún barst, 10. mars. Þrátt fyrir það hefði bærinn haldið ferlinu áfram og opnað tilboð 23. mars.

Mat á tilboðum átti að taka fimm daga samkvæmt útboðsgögnum en bæjaryfirvöld tilkynntu aðeins tveimur dögum eftir að tilboð voru opnuð að þau hefðu ákveðið að vilja tilboð World Class. Bindandi samningur væri þegar kominn á um það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×