Sjóður Visku minnkaði um helming samtímis gengislækkun og innlausnum
Gengistap samhliða erfiðum aðstæðum á rafmyntamörkuðum og innlausnir meðal fjárfesta þýddi að eignir í stýringu rafmyntasjóðs hjá Visku lækkuðu um liðlega helming í fyrra. Yfir tuttugu fjárfestar lögðu nýjum sjóði Visku, sem beinir meðal annars sjónum sínum að fjárfestingum tengdum gervigreind, til um milljarð króna á seinni árshelmingi.
Tengdar fréttir
Verulegur munur í ávöxtun innlendra sjóða með virka stýringu síðustu þrjú ár
Verulegur munur er á gengi yfir tuttugu innlendra fjárfestingarsjóða sem beita virkri stýringu á undanförnum þremur árum, sem hafa einkennst af krefjandi markaðsaðstæðum hér á landi, en uppsöfnuð ávöxtun þess sjóðs sem hefur skarað fram úr er um 150 prósent á meðan þeir sjóðir sem reka lestina eru niður um ríflega 70 prósent. Stjórnendur rafmyntasjóðsins Visku telja að ný heimsmynd, sem muni meðal annars mótast af tollastríði og aukinni geópólitískri spennu, kalli á róttæka endurskoðun á eignasafni fjárfesta.
Er íslenskt samfélag undirbúið fyrir gervigreindarbyltinguna?
Margir hafa bent á að gervigreind muni leiða til aukinnar framleiðni, nýrra tækifæra og hraðari hagvaxtar. Það er líklega rétt til lengri tíma. En saga tækniframfara sýnir einnig að slíkar breytingar geta haft djúpstæð áhrif á vinnumarkað og efnahagskerfi og oft gerist það hraðar en fólk gerir sér grein fyrir í upphafi.