Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar 16. apríl 2026 09:32 Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga verða umferðarmál eitt stærsta loforðið. Framboð keppast við að lofa betra flæði, styttri ferðatíma og fleiri framkvæmdir. Lausnirnar eru oft þær sömu, breikka vegi og bæta gatnamót, auka fjármagn í strætó og viðhald. En það dugar ekki eitt og sér. Hafnarfjörður hefur á undanförnum árum tekið ákveðin skref í samgöngumálum. Uppbygging hefur orðið markvissari og verkefni sett í skýrari farveg. En stóru áskoranirnar eru enn óleystar. Íbúar finna enn fyrir áskorunum í daglegu lífi. Tafir við Lækjargötu, aukin umferð í gegnum miðbæinn og meira álag með frekari uppbyggingu, meðal annars við höfnina í tengslum við Tækniskólann. Þetta eru áskoranir sem krefjast raunverulegra lausna – ekki einfaldra kosningaloforða Áskoranirnar í Hafnarfirði liggja fyrir, en vandinn er að miklu leyti kerfislægur. Það er orðið of flókið og þungt. Og það er ástæðan fyrir því að lausnirnar sem oft eru lofaðar skila ekki þeim árangri sem íbúar finna fyrir í daglegu lífi. Sveitarfélög skipuleggja, ríkið fer með ábyrgð á stærri samgönguverkefnum og stofnanir eins og Vegagerðin gegna lykilhlutverki. Á sama tíma fara stór verkefni í gegnum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, Borgarlínu og fjölda samninga milli aðila þar sem samhæfing og samskipti ráða úrslitum. Niðurstaðan er sú sem margir kannast við, enginn hefur heildaryfirsýn, verkefni fara á milli borða og ákvarðanir dragast á langinn. Á meðan eykst umferðin. Niðurstaðan? Verkefni tefjast og tækifæri tapast. Við þurfum að laga þetta. Við í Framsókn viljum setja á laggirnar samgönguráð í Hafnarfirði. Ráð sem er ekki enn eitt báknið – heldur verkfæri til að: samræma skipulag og framkvæmdir tryggja skýr samskipti við ríkið og lykilaðila fylgja verkefnum eftir af festu og halda þrýstingi á framkvæmd þar sem þarf Þetta snýst um að loka bilinu milli ákvarðana og framkvæmda. Jafnframt þarf að styrkja samgöngusáttmálann og gera hann að raunverulegu stjórntæki með skýrari forgangsröðun og meiri ábyrgð á framvindu verkefna. Við ætlum að halda áfram á réttri leið. En við ætlum líka að taka næsta skref. Því þetta snýst um Hafnarfjörð og hvernig við komum honum áfram. Höfundur er í 6. sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Sjá meira
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga verða umferðarmál eitt stærsta loforðið. Framboð keppast við að lofa betra flæði, styttri ferðatíma og fleiri framkvæmdir. Lausnirnar eru oft þær sömu, breikka vegi og bæta gatnamót, auka fjármagn í strætó og viðhald. En það dugar ekki eitt og sér. Hafnarfjörður hefur á undanförnum árum tekið ákveðin skref í samgöngumálum. Uppbygging hefur orðið markvissari og verkefni sett í skýrari farveg. En stóru áskoranirnar eru enn óleystar. Íbúar finna enn fyrir áskorunum í daglegu lífi. Tafir við Lækjargötu, aukin umferð í gegnum miðbæinn og meira álag með frekari uppbyggingu, meðal annars við höfnina í tengslum við Tækniskólann. Þetta eru áskoranir sem krefjast raunverulegra lausna – ekki einfaldra kosningaloforða Áskoranirnar í Hafnarfirði liggja fyrir, en vandinn er að miklu leyti kerfislægur. Það er orðið of flókið og þungt. Og það er ástæðan fyrir því að lausnirnar sem oft eru lofaðar skila ekki þeim árangri sem íbúar finna fyrir í daglegu lífi. Sveitarfélög skipuleggja, ríkið fer með ábyrgð á stærri samgönguverkefnum og stofnanir eins og Vegagerðin gegna lykilhlutverki. Á sama tíma fara stór verkefni í gegnum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, Borgarlínu og fjölda samninga milli aðila þar sem samhæfing og samskipti ráða úrslitum. Niðurstaðan er sú sem margir kannast við, enginn hefur heildaryfirsýn, verkefni fara á milli borða og ákvarðanir dragast á langinn. Á meðan eykst umferðin. Niðurstaðan? Verkefni tefjast og tækifæri tapast. Við þurfum að laga þetta. Við í Framsókn viljum setja á laggirnar samgönguráð í Hafnarfirði. Ráð sem er ekki enn eitt báknið – heldur verkfæri til að: samræma skipulag og framkvæmdir tryggja skýr samskipti við ríkið og lykilaðila fylgja verkefnum eftir af festu og halda þrýstingi á framkvæmd þar sem þarf Þetta snýst um að loka bilinu milli ákvarðana og framkvæmda. Jafnframt þarf að styrkja samgöngusáttmálann og gera hann að raunverulegu stjórntæki með skýrari forgangsröðun og meiri ábyrgð á framvindu verkefna. Við ætlum að halda áfram á réttri leið. En við ætlum líka að taka næsta skref. Því þetta snýst um Hafnarfjörð og hvernig við komum honum áfram. Höfundur er í 6. sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar