Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson skrifar 15. apríl 2026 08:30 Það voru margir undrandi þegar í ljós kom að einn listinn (S-listinn) hefur mig, fjörgamlan manninn, í framboði. Að vísu neðst á listanum en sumir tala um það sé heiðurssæti sem er auðvitað ekki verra en hvað annað því einhver verður að vera síðastur enda segir á góðum stað að þeir síðustu verði fyrstir áður en yfir lýkur. En að öllu gamni slepptu þá sýnist mér að þessi ágæti listi geymi margt ungt og efnilegt fólk sem er víst til að fleyta bænum okkur góða úr þeirri værð og fjarlægð frá íbúum hans sem einkennt hefur bæjarstjórn undanfarin ár. Sjálfur hef ég barist fyrir því að virkja bæjarbúa til þátttöku varðandi skipulag miðbæjarins og notið aðstoðar við það frá fjölda manns sem náði hámarki þegar við héldum fjölmennasta íbúaþing landsins um árið. Þar voru mótaðar meginlínur um það hvernig allur þessi fjöldi vildi hafa miðbæinn og afraksturinn allur gefinn bæjarstjórn með hátíðlegri viðhöfn. Bæjarstjórn tók vel á móti þessum tillögum en að lokum fleygði hún þeim öllum í ruslatunnuna og fór sínu fram um skipulag miðbæjarins. Tók ekkert tillit til skoðana íbúaþingsins og hefur ekki gert síðan, aldrei. Bara fjasað um þessi mikilvægu málefni innan sinna veggja og síðan raðað öllu upp eftir baktjaldamakk og engu svarað ábendingum eða fyrirspurnum bæjarbúa. Þannig hafa árin liðið. Hins vegar hefur síðustu misseri heyrst úr bæjarstjórn að athugandi væri að leita til íbúa bæjarins þegar nú er stefnt að því að skipuleggja upp á nýtt svæðið þar sem íþróttavöllurinn er fyrir norðan Hólabraut. Ekki veit ég hvort þetta er sagt í alvöru eða hvort þetta er bara enn ein sýndarmennskan. Það fer auðvitað eftir því hverjir verða í bæjar-stjórninni næstu árin. Mér sýnist að með lista Samfylkingarinnar sé verið að endurnýja liðið verulega og vonandi fylgja því ný og betri vinnubrögð. Þess vegna gef ég kost á mér á að vera gamli maðurinn á listanum og styðja unga fólkið til að koma á eðlilegu sambandi við bæjarbúa, fá góð ráð frá almenningi í mikilvægum málaflokkum og fara jafnvel eftir þeim. Það er tími til kominn. Þannig er ef til vill enn hægt að nýta gamla ellibelgi til góðra verka! Höfundur skipar 22. sæti S-listans á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar