Upp­gjörið: KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær fram­lengingar

Hjörvar Ólafsson skrifar
Hilmar Smári Henningsson og Linards Jauzems í baráttu í leiknum í kvöld. 
Hilmar Smári Henningsson og Linards Jauzems í baráttu í leiknum í kvöld.  Vísir/Anton Brink

Stjörnumenn eru komnir áfram í undanúrslit Bónus-deildar karla í körfubolta eftir þriggja stiga sigur á KR í rosalegum fjórða leik liðanna á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld. 

Úrslitin réðust ekki fyrr en eftir tvær framlengingar og leikurinn var vægast sagt viðburðarríkur.

Stjarnan fór að lokum með 118-115 sigur af hólmi en staðan var 92-92 eftir venjulegan leiktíma og 105-105 eftir fyrri framlengingu.

Stjörnumenn urðu fyrir gríðarlegu áfalli þegar fyrirliði þeirra Ægir Þór Steinarsson fór af velli illa meiddur á olnboga í þriðja leikhluta.

Þegar Ægir Þór meiddist var staðan 75-60 Stjörnunni í vil og KR með pálmann í höndunum. Stjörnuliðið gafst hins vegar ekki upp þó síður sé. Gestirnir unnur upp forskot KR-inga og komu leiknum í framlengingu.

KR-ingar voru í frábærri stöðu til að tryggja sér sigurinn í framlengingununum og þar með oddaleik en Garðbæingar sýndu magnaðan karakter og tókst að landa sigri.

Baldur Þór Ragnarsson er kominn í undanúrslit með Stjörnuliðið. Vísir / Diego

Baldur Þór: Frábær sigur í krefjandi aðstæðum

„Þetta var bara ótrúlegur körfuboltaleikur og ég er ofboðslega ánægður með að hafa landað sigri. Hér mættust tvö frábær körfuboltalið og leikurinn var fram og til baka allan leikinn,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar.

„Það voru krefjandi aðstæður að vera undir og missa Ægi Þór í þessi hrikalegu meiðsli. Það er hins vegar oft í íþróttum að svona móment geta hvatt þig til dáða. Við brugumst frábærlega við þessu mótlæti og ég er gríðarlega stoltur af leikmönnum mínum,“ sagði Baldur Þór enn fremur. 

„Eins og ég segi þá voru þetta bara tvö körfuboltalið í hæsta gæðaflokki að mætast og leikurinn var jafn eins og í raun bara allar viðureignir liðanna í vetur. Það er erfitt að segja eitthvað eitt frekar en annað hafi skilað þessu. Við erum bara fyrst og fremst ánægður að vera komnir í undanúrslit eftir þessa rússibanareið,“ sagði hann. 

Jakob Örn: Gríðarlega svekktur en á sama tíma stoltur

„Svekkelsið er  gríðarlegt að hafa ekki náð að klára þennan leik með sigri. Við náðum undirtökunum aftur og aftur en náðum ekki að slíta þá almennilega frá okkur. Það kemur svo slæmur kafli í þriðja leikhluta sem gerir þetta að leik og undir lokin náðum við ekki að tryggja okkur sigurinn sem við ætluðum okkur,“ sagði Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR. 

„Það má segja að það sé slæm byrjun og dræm stigasöfnun á fyrri hluta tímabilsins sem setur okkur í þá stöðu að vera að spila við frábært lið Stjörnunnar á þessum tímapunkti í úrslitakeppninna. Að mínu mati hefði þessi sería átt að vera í undanúrslitum eða úrslitum en við lærum af því á næsta tímabili að freista þess að vera stöðugri í lengri tíma í deildarkeppninni,“ sagði Jakob Örn þar að auki. 

„Heilt yfir er ég svona þokkalega sáttur við leiktíðina. Það er auðvitað vonbrigði að fara ekki lengra í úrslitakeppninni þar sem við ætluðum okkur klárlega að fara alla leið. Liðið hefur hins vegar þroskast helling og fullt af jákvæðum hlutum sem við getum tekið með okkur inn í næsta tímabil svona þegar við jöfnum okkur á þessu svekkelsi,“ sagði Jakob en KR varð bikarmeistari undir hans stjórn fyrr á þessu tímabili. 

Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, fer yfir málin með leikmönnum sínum á hliðarlínunni. Vísir/Anton Brink

Atvik leiksins

Meiðsli Ægis Þórs settu svartan blett á þennan magnaða íþróttaviðburð. Það er ekki hægt að taka neitt eitt körfuboltalegt atriði út úr þessum leik, til þess voru þau allt of mörg. Þvílíkur leikur.  

Stjörnur og skúrkar

Hilmar Smári Henningsson og Luka Gasic voru í broddi fylkingar í Stjörnuliðinu sem sýndi gríðarlegan karakter í þessum leik. Stjörnuliðið var 15 stigum undir, 75-60, þegar Ægir Þór handleggsbrotnaði í þriðja leikhluta. 

Hilmar Smári og Luka Gasic stigu upp þegar á þurfti að halda og voru aðalleikararnir í því að sigla þessum sigri í höfn. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Kristinn Óskarsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Birgir Orn Hjörvarsson höfðu einkar góð tök á leik sem var alls ekki auðvelt að dæma. Dómararnir voru í aukahlutverki í þessum frábæra körfuboltaleik sem er vel og fá þeir þar af leiðandi níu í einkunn. 

Dómaratríóið stóð sig vel í þessum maraþonleik. Vísir/Anton Brink

Stemming og umgjörð

Gjörsamlega frábær stemming í Vesturbænum í kvöld. Hvert sæti í húsinu var setið og bæði lið voru ríkulega studd af kraftmiklum hætti. Liðin eiga hvort um sig góðan katalóg af lögum sem sungin voru af miklum móð og fallega.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira