Kvíðakast einstæðingsins Sólveig Skaftadóttir skrifar 14. apríl 2026 08:32 Hugsum okkur gamlan mann í Kópavogi, köllum hann Kristján. Hann veikist skyndilega. Kannski eftir fall, veikindi eða einfaldlega vegna þess að heilsan hefur smám saman versnað. Hann fer á spítala, fær þar góða þjónustu og kemst svo í endurhæfingu. Þar gengur honum betur. Hann nær sér að hluta og er sendur heim. Það gerist hratt og áður en hann veit af er honum húrrað heim. Og þá byrjar vandinn. Þegar heim er komið tekur við allt annað kerfi. Nú þarf að sækja um heimaþjónustu og heimahjúkrun. Mögulega akstursþjónustu eða aðstoð við daglegt líf. Hver þjónusta hefur sína umsókn, sína ferla og sína aðila. Enginn hefur yfirsýn yfir heildina. Ef hann er heppinn á hann aðstandanda sem getur hjálpað honum að rata í gegnum þetta. Einhvern sem hringir, fyllir út umsóknir, fylgir málum eftir og tengir saman þá þjónustu sem á að virka sem ein heild. En þannig er svo sem ekki komið fyrir öllum. Þetta er ekki algjörlega ímyndað dæmi. Þetta er eitthvað sem margir þekkja og tengja við. Þetta var allt í lagi á meðan Kristján var inni á spítala og í endurhæfingu. Þar er þjónustan samhæfð og ábyrgðin nokkuð skýr. En um leið og heim er komið brotnar þjónustan upp í aðskilda hluta, milli kerfa, milli stjórnsýslustiga og milli ábyrgðaraðila. Heimaþjónusta er á vegum sveitarfélags og heimahjúkrun á vegum ríkisins. Fyrir stjórnsýsluna er þetta skýr verkaskipting. En fyrir Kristján okkar, er þetta eitt og sama lífið. Þegar þessi þjónusta talar ekki saman skapast hætta. Fólk fær ekki þá aðstoð sem það þarf á réttum tíma. Álagið eykst, heilsan versnar og í verstu tilfellum endar fólk aftur á spítala. Þetta er dýr leið. Bæði fyrir einstaklinga og samfélagið. Við vitum að þessi staða kemur oft upp. Við vitum líka að það er hægt að gera betur. Höfum það hugfast að kerfin, skrifræðið sem er til staðar, er mannanna verk. Kerfin okkar eiga að virka fyrir notendur og þegar kerfið virkar ekki sem skyldi er það á ábyrgð stjórnmálamanna að bæta úr þeim. Það ætti ekki að vera hlutverk aðstandenda að brjótast í gegnum skrifræðið til þess að tryggja nauðsynlega þjónustu. Í nýju útspili Samfylkingarinnar um daglegt líf er einmitt tekið á þessu. Samfylkingin leggur áherslu á að stórefla þjónustu við eldra fólk í heimahúsum með því að samþætta heimaþjónustu, heimahjúkrun og ráðgjöf í eina samfellda þjónustu sem fylgir þörfum hvers og eins. Þetta er nákvæmlega sú nálgun sem þarf til, að þjónustan sé ekki sundurleit, heldur ein heild í kringum fólkið sem þarf á henni að halda. Í Reykjavík og Mosfellsbæ hefur verið farið í þessa átt, að samþætta heimaþjónustu og heimahjúkrun. Þar er þjónustan skipulögð sem ein heild í kringum einstaklinginn, með meiri samvinnu, betra upplýsingaflæði og skýrari ábyrgð. Þetta skiptir máli. Raunveruleg þjónusta snýst ekki um það hvað er til á blaði. Hún snýst um það hvort að við náum utan um fólk á réttum tíma, jafnvel áður en vandinn verður of stór. Við eigum ekki að bíða eftir að fólk og aðstandendur villist í völundarhúsi stjórnsýslunnar til að fá hjálp. Þjónustan á að mæta fólki fyrr og án þess að það þurfi að berjast fyrir henni. Með forvirkri nálgun og samþættri þjónustu er hægt að styðja fólk til að halda sjálfstæði sínu lengur, draga úr þörf fyrir innlagnir og bæta lífsgæði. Í dag er ábyrgðin of oft á einstaklingnum sjálfum, eða aðstandendum hans, að tengja saman þjónustu sem ætti að vera samfelld. Það er hvorki sanngjarnt né skilvirkt. Og kannski er það ástæðan fyrir þessu litla kvíðakasti mínu. Eins og staðan er í dag er ég einstæð og barnlaus. Ég mun ekki endilega hafa aðstandendur sem geta gripið inn í þegar ég þarf á þjónustu að halda í ellinni. Þá þarf þjónustan að grípa mig. Í dag er ég ekki viss um að hún geri það. Við erum að eldast sem samfélag. Fólki sem býr eitt fjölgar. Það þýðir að samfélagið þarf að taka meiri ábyrgð - ekki minni. Í Kópavogi eigum við að stíga þetta skref. Samþætta heimaþjónustu og heimahjúkrun og byggja upp þjónustu sem virkar sem ein heild í kringum einstaklinginn. Þá þarf enginn að fá kvíðakast yfir því að eldast. Höfundur skipar fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Samfylkingin Mest lesið Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Sjá meira