Skutlað í skólann og svo einkaþota á Augusta Valur Páll Eiríksson skrifar 11. apríl 2026 10:00 McIlroy gat nýtt auka tíma sem honum, sem ríkjandi meistara, bauðst á Augusta National-vellinum. Andrew Redington/Getty Images Rory McIlroy hefur búið sig vel undir Masters-mótið sem hann leiðir með metmun fyrir síðustu tvo hringina. Hann hefur notið kosti þess að vera ríkjandi meistari.
McIlroy er með sex högga forystu eftir fyrstu tvo hringi mótsins og hótar því að vera sá fyrsti til að verja Masters-titilinn frá því að Tiger Woods gerði það árið 2002. Sem ríkjandi meistari hefur hann getað eytt meiri tíma á Augusta-vellinum fræga, sem almennt er lokaður öllum öðrum en fámennum hópi klúbbsmeðlima og fyrri sigurvegurum. Hann segir mótin í aðdraganda Masters-mótsins, Opna mótið í Houston og Valero Texas mótið í San Antonio, ekki heilla mjög. „Í sannleika sagt líkar mér ekki við mótin þrjú sem eru í aðdraganda þessa viðburðar. Mér þykir betra að koma hingað uppeftir að spila,“ sagði McIlroy á blaðamannafundi eftir frábæran annan hring hans í gær þar sem Norður-Írinn lék á sjö undir pari vallar. „Ég tók tvo daga þar sem ég skutlaði Poppy (dóttur hans) í skólann, flaug hingað, spilaði hring og fór svo til baka til að borða kvöldmat með henni og Ericu (Stoll, eiginkonu McIlroy). Ég skipulagði nokkrar þannig ferðir sem mér þótti betri nýting á tíma mínum en að fara til Houston eða San Antonio,“ Rory McIlroy said that in the weeks leading up to the Masters, there were days he would drop off Poppy at school, fly to Augusta, play a round, and make it back home in time for dinner.Perks of being the defending champ. 😂 pic.twitter.com/nTOHp2Uwdy— Golf Digest (@GolfDigest) April 11, 2026 „Það snerist ekki um að spara orku en mér þótti að því meiri tíma sem ég gat eytt hér, því betra,“ sagði McIlroy en ummælin má sjá í spilaranum. Þriðji hringur Masters-mótsins verður leikinn í dag. Bein útsending hefst klukkan 16:00 á Sýn Sport.
Masters-mótið Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira