Golf

Skutlað í skólann og svo einkaþota á Augusta

Valur Páll Eiríksson skrifar
McIlroy gat nýtt auka tíma sem honum, sem ríkjandi meistara, bauðst á Augusta National-vellinum.
McIlroy gat nýtt auka tíma sem honum, sem ríkjandi meistara, bauðst á Augusta National-vellinum. Andrew Redington/Getty Images

Rory McIlroy hefur búið sig vel undir Masters-mótið sem hann leiðir með metmun fyrir síðustu tvo hringina. Hann hefur notið kosti þess að vera ríkjandi meistari.

McIlroy er með sex högga forystu eftir fyrstu tvo hringi mótsins og hótar því að vera sá fyrsti til að verja Masters-titilinn frá því að Tiger Woods gerði það árið 2002. Sem ríkjandi meistari hefur hann getað eytt meiri tíma á Augusta-vellinum fræga, sem almennt er lokaður öllum öðrum en fámennum hópi klúbbsmeðlima og fyrri sigurvegurum.

Hann segir mótin í aðdraganda Masters-mótsins, Opna mótið í Houston og Valero Texas mótið í San Antonio, ekki heilla mjög.

„Í sannleika sagt líkar mér ekki við mótin þrjú sem eru í aðdraganda þessa viðburðar. Mér þykir betra að koma hingað uppeftir að spila,“ sagði McIlroy á blaðamannafundi eftir frábæran annan hring hans í gær þar sem Norður-Írinn lék á sjö undir pari vallar.

„Ég tók tvo daga þar sem ég skutlaði Poppy (dóttur hans) í skólann, flaug hingað, spilaði hring og fór svo til baka til að borða kvöldmat með henni og Ericu (Stoll, eiginkonu McIlroy). Ég skipulagði nokkrar þannig ferðir sem mér þótti betri nýting á tíma mínum en að fara til Houston eða San Antonio,“

„Það snerist ekki um að spara orku en mér þótti að því meiri tíma sem ég gat eytt hér, því betra,“ sagði McIlroy en ummælin má sjá í spilaranum.

Þriðji hringur Masters-mótsins verður leikinn í dag. Bein útsending hefst klukkan 16:00 á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×