Magnaður McIlroy með stærsta forskot sögunnar Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. apríl 2026 23:07 Vippan hjá Rory McIlroy var hrein unun að horfa á. Jared C. Tilton/Getty Images Ríkjandi meistarinn Rory McIlroy átti hreint frábæran dag og er tólf höggum undir pari eftir fyrstu tvo hringina á Masters-mótinu í golfi. Enginn hefur áður verið með jafn stórt forskot á miðpunkti mótsins. McIlroy fór fljúgandi af stað og byrjaði hringinn á þremur fuglum áður en skollar á 5. og 10. holu tóku við. Endaspretturinn hjá McIlroy var síðan enn betri en byrjunin. Á síðustu sjö holunum náði hann sex fuglum. Þannig lauk hann hringnum í dag á 65 höggum, eftir að hafa farið fyrsta hringinn á 67 höggum í gær. Besta höggið hjá þessum magnaða kylfingi var vafalaust á 17. holu þegar hann vippaði boltanum beint ofan í holu af 25 metra færi. Roars for Rory after a chip-in birdie on No. 17. #themasters pic.twitter.com/g7dWFVTIf4— The Masters (@TheMasters) April 10, 2026 Ef McIlroy heldur áfram að spila svona vel verður hann sá fyrsti síðan Tiger Woods árið 2002 til að verja Masters-meistaratitilinn. Norður-Írinn er langefstur nú þegar mótið er hálfnað en Sam Burns og Patrick Reed deila öðru sætinu, sex höggum undir pari eftir fyrstu tvo hringina. Ending on a high note. Sam Burns birdies No. 18. #themasters pic.twitter.com/pcYsxtqaRW— The Masters (@TheMasters) April 10, 2026 Enginn hefur áður verið með jafn stórt forskot eftir fyrstu tvo dagana. McIlroy er með sex högga forskot á næstu menn en fyrra metið var fimm högga forskot. Nokkrir hafa náð því áður en sá síðasti var Scottie Scheffler, efsti kylfingur heimslistans, þegar hann vann mótið árið 2022. Scheffler var meðal efstu manna eftir hringinn í gær en stóð sig ekki jafn vel í dag. Hann lauk leik í dag tveimur höggum yfir pari og er dottinn niður í 24. sæti. Efstu menn Masters eftir tvo daga: 1. Rory McIlroy (-12) T2. Sam Burns (-6) T2. Patrick Reed (-6) T4. Justin Rose (-5) T4. Shane Lowry (-5) T4. Tommy Fleetwood (-5) T7. Wyndham Clark (-4) T7. Tyrrell Hatton (-4) T7. Haotong Li (-4) T7. Kristoffer Reitan (-4) T7. Jason Day (-4) T7. Cameron Young (-4) Golf Masters-mótið Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira
McIlroy fór fljúgandi af stað og byrjaði hringinn á þremur fuglum áður en skollar á 5. og 10. holu tóku við. Endaspretturinn hjá McIlroy var síðan enn betri en byrjunin. Á síðustu sjö holunum náði hann sex fuglum. Þannig lauk hann hringnum í dag á 65 höggum, eftir að hafa farið fyrsta hringinn á 67 höggum í gær. Besta höggið hjá þessum magnaða kylfingi var vafalaust á 17. holu þegar hann vippaði boltanum beint ofan í holu af 25 metra færi. Roars for Rory after a chip-in birdie on No. 17. #themasters pic.twitter.com/g7dWFVTIf4— The Masters (@TheMasters) April 10, 2026 Ef McIlroy heldur áfram að spila svona vel verður hann sá fyrsti síðan Tiger Woods árið 2002 til að verja Masters-meistaratitilinn. Norður-Írinn er langefstur nú þegar mótið er hálfnað en Sam Burns og Patrick Reed deila öðru sætinu, sex höggum undir pari eftir fyrstu tvo hringina. Ending on a high note. Sam Burns birdies No. 18. #themasters pic.twitter.com/pcYsxtqaRW— The Masters (@TheMasters) April 10, 2026 Enginn hefur áður verið með jafn stórt forskot eftir fyrstu tvo dagana. McIlroy er með sex högga forskot á næstu menn en fyrra metið var fimm högga forskot. Nokkrir hafa náð því áður en sá síðasti var Scottie Scheffler, efsti kylfingur heimslistans, þegar hann vann mótið árið 2022. Scheffler var meðal efstu manna eftir hringinn í gær en stóð sig ekki jafn vel í dag. Hann lauk leik í dag tveimur höggum yfir pari og er dottinn niður í 24. sæti. Efstu menn Masters eftir tvo daga: 1. Rory McIlroy (-12) T2. Sam Burns (-6) T2. Patrick Reed (-6) T4. Justin Rose (-5) T4. Shane Lowry (-5) T4. Tommy Fleetwood (-5) T7. Wyndham Clark (-4) T7. Tyrrell Hatton (-4) T7. Haotong Li (-4) T7. Kristoffer Reitan (-4) T7. Jason Day (-4) T7. Cameron Young (-4)
Efstu menn Masters eftir tvo daga: 1. Rory McIlroy (-12) T2. Sam Burns (-6) T2. Patrick Reed (-6) T4. Justin Rose (-5) T4. Shane Lowry (-5) T4. Tommy Fleetwood (-5) T7. Wyndham Clark (-4) T7. Tyrrell Hatton (-4) T7. Haotong Li (-4) T7. Kristoffer Reitan (-4) T7. Jason Day (-4) T7. Cameron Young (-4)
Golf Masters-mótið Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira