Haukar - FH 27-22 | Haukar jöfnuðu Hafnarfjarðarslaginn

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Haukar FH. Olís deild karla, handbolti HSÍ 2025.
Haukar FH. Olís deild karla, handbolti HSÍ 2025.

Haukar jöfnuðu í kvöld, 1-1, í einvígi sínu gegn FH í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Lokatölur 27-22 í leik sem lengi vel var í járnum.

Að lokinni einnar mínútu þögn til heiður Björgvins Halldórssonar fyrir leik, þá sagði BÓ go og voru Haukar fljótlega komnir í 2-0 stöðu. Ekki leið þó að löngu þar til FH jafnaði leikinn og fylgdust liðin að í markaskorun næstu mínútur.

Smá harðlífi kom í sóknarleik FH um miðbygg hálfleiksins og leikhlé því tekið hjá þeim hvítklæddu. Ekki leið að löngu þar til að leikurinn var aftur orðin jafn. Staðan 9-9 og báðar varnir feikilega sterkar.

Haukum tókst á lokakafla hálfleiksins að ná yfirhöndinni í leiknum og koma sér í tveggja marka forystu þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik. Staðan 13-11 í hálfleik, þar sem öll bestu lög Björgvins Halldórssonar fengu að óma um Ásvelli.

Haukar héldu áfram í síðari hálfleik líkt og frá var horfið í lok fyrri hálfleiks. Snemma í seinni hálfleiknum var forystan orðin fjögur mörk, 16-12, og mikið stuð hjá heimamönnum.

FH-ingar voru þó fljótir að minnka þá forystu niður í eitt mark og staðan 18-17 þegar tuttugu mínútur voru eftir. Strax í kjölfarið náðu Haukar aftur að slíta sig frá FH og var munurinn á liðunum að jafnaði um þrjú mörk.

Þegar mínútunum á leikklukkunni fór sífellt fækkandi fóru FH-ingar í erfiðari aðgerðir í sóknarleik sínum til þess að ná inn skjótum mörkum. Haukar hins vegar héldu fast í sitt leikplan og spiluðu sínar uppstilltu sóknir af miklum aga.

Endaði það með því að fleiri færi fóru forgörðum hjá FH og Haukar gengu frá leiknum á lokamínútunum.

Atvik leiksins

Falleg stund í upphafi leiks þegar Björgvin Halldórsson var minnst. Skrifað í skýin að stórleikur milli þessara Hafnarfjarðarisa komi upp á degi eftir andlát eins merkasta Hafnfirðings sögunnar. Hvíli BÓ í friði.

Annars var ekkert eitt úrslitaatvik í þessum leik þrátt fyrir að nokkrum sinnum kastaðist í kekki milli leikmanna og frábær tilþrif hafi litið dagsins ljós á báðum endum vallarins.

Stjörnur og skúrkar

Aron Rafn Eðvarðsson var munurinn á liðunum í dag. Var hann með 47,5% markvörslu og varði meðal annars fjögur víti í leiknum. Stórkostlega frammistaða hjá þessum stæðilega markverði.

Markverðir FH áttu ansi dapran dag og vörðu aðeins sjö bolta í heildina, eða 20% skota. Var það í raun munurinn á liðunum, en í gegnum allan síðari hálfleikinn þá varði Aron Rafn hvert skotið á fætur öðru á meðan markverðir FH náðu varla að klukka boltann og ef það tókst fór boltinn samt í markið.

Dómarar

Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson höfðu góð tök á þessum leik. Héldu góðri línu og leyfðu leiknum að fljóta vel. Misstu þeir leikinn aldrei í neina vitleysu þrátt fyrir að mikill hiti hafi verið í leiknum, enda erkióvinir að mætast í risaleik.

Stemning og umgjörð

Fyrstu áhangendur voru mættir um klukkustund fyrir leik. Var húsið svo gott sem fullt þegar flautað var til leiks og mikil læti í báðum stuðningsmannasveitum. Ef eitthvað er þá mun þessi stemning bara ágerast sem á líður á þetta einvígi.

Viðtöl 

Sigursteinn Arndal: „Við erum bara í seríu og það bara gengur á allskonar“

Sigursteini Arndal, þjálfara FH, fannst sóknarleikur síns liðs bregðast í tapi liðsins gegn Haukum.

„Sóknarlega vorum við ekki nógu öflugir. Bæði fórum við illa með mjög mörg góð færi hvort sem við erum að tala um dauðafæri í leik eða víti og svo vantaði bara aðeins upp á þetta. Við þurfum bara að kíkja á það og laga fyrir þriðjudaginn.“

„Ég ætla þó að halda mig við það að það var fullt af góðum hlutum. Varnarlega var margt jákvætt í gangi. Við erum bara í seríu, FH-Haukar, og það bara gengur á allskonar og nú þurfum við bara að svara.“

Markvarslan var ekki góð hjá FH í þessum leik eftir að hún hafi verið frábær í leik eitt. Sigursteinn var sammála því, en segir markverði sína mega misstíga sig líkt og aðrir.

„Þeir vita það best sjálfir. Við vitum það líka að við erum með frábæra markmenn og þeir hafa alveg leyfi til að misstíga sig og ég hef engar áhyggjur af þeim. Þeir munu svara þessu eins og allt FH-liðið.“

„Úrslitakeppnin snýst mikið um það að ná sér bara líkamlega og huga vel að líkamanum og vera góður að greina og fara yfir hluti. Það er það sem við þurfum að gera núna og vera gagnrýnir og svo þurfum við sem lið að svara á þriðjudeginum fyrir framan stútfullan Kaplakrika,“ sagði Sigursteinn um framhaldið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira