Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Freyja Þórisdóttir skrifar 10. apríl 2026 17:15 Próftökutímabil fyrir inntökupróf í lögregluna hófst nú í upphafi apríl. Vísir/Lýður Valberg Fjölmargir hafa eflaust orðið varir við aukið sírenuvæl undanfarna daga á höfuðborgarsvæðinu. Það á sér þó mjög hversdagslegar skýringar en yfir standa æfingar í forgangsakstri hjá lögreglunemum. Sjái fólk lögreglubíla á fleygiferð um borgina sé því ekki ólíklegt að þeir séu á æfingu frekar en á leið í útkall.
Þetta segir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýsingafulltrúi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu Vísis. „Þetta eru nemar sem eru að æfa forgangsakstur en æfingarnar standa yfir í nokkra daga og þá er von á meiri umferð bíla með ljós og sírenur,“ segir Gunnar. Æfingarnar séu á vegum Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar sem heyrir undir ríkislögreglustjóra. Á vef þeirra kemur fram að lokað hafi verið fyrir umsóknir þann 26. mars síðastliðinn. Stig aksturs fer eftir alvarleika útkalls Stig forgangsaksturs eru þrjú en stig þrjú á við um akstur í útkalli sem þykir ekki áríðandi. Þá er hvorki keyrt yfir á rauðu ljósi né yfir hámarkshraða. Hin stigin, tvö og eitt, eiga svo við ef um útköll vegna alvarlegra slysa, svo sem bílslys þar sem fólk slasast illa eða slíkt, er að ræða. Í slíkum útköllum er kveikt á ljósum og sírenum og lögreglumönnum er heimilt að keyra yfir á rauðum ljósum og yfir hámarkshraða. Nemar æfa stigin þrjú ásamt kennara sem sýnir þeim hvernig skal keyra áður en þeir fá svo að spreyta sig. Nám í lögreglufræðum er kennt í Háskólanum á Akureyri en það er algengt að nemendur stundi námið í fjarnámi. Alls tekur námið tvö ár en opið er fyrir umsóknir fyrir verðandi lögreglumenn á hverju vori.
Lögreglan Reykjavík Skóla- og menntamál Háskólar Lögreglumál Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira