Símabannið bitnaði illa á goðsögn Sindri Sverrisson skrifar 10. apríl 2026 08:31 Mark Calcavecchia hugsar sig eflaust tvisvar um áður en hann tekur aftur upp síma á Augusta-vellinum. Samsett/Getty Eitt af því sem gerir Masters-mótið einstakt er hve fast er haldið í hefðirnar og meðal annars þá reglu að símar eru algjörlega bannaðir á Augusta-vellinum. Það bann gildir ekki bara fyrir venjulega áhorfendur heldur einnig núverandi og fyrrverandi kylfinga, eins og sannaðist í vikunni.
Hinum 65 ára gamla Mark Calcavecchia var nefnilega vísað í burtu af Augusta-vellinum, samkvæmt bandarískum fjölmiðlum, vegna símanotkunar á þriðjudaginn. Calcavecchia nýtur mikillar virðingar enda sigursæll á sínum tíma þó að honum hafi ekki tekist að vinna Masters. Hann komst næst því árið 1988 þegar hann endaði í 2. sæti en vann svo Opna breska meistaramótið ári síðar. Þá var hann fjórum sinnum í Ryder-bikarliði Bandaríkjanna og vann alls 13 mót á PGA-mótaröðinni. Og þó að Calcavecchia væri mættur sem heiðursgestur, sem sigurvegari á risamóti, þá var honum ekki sýnd nein miskunn þegar hann sást taka upp símann sinn á þriðjudaginn. Öryggisverðir vísuðu honum af svæðinu, samkvæmt til að mynda USA Today og Golfweek. No phones at Augusta National, even for major champions. 📵Mark Calcavecchia is the latest to find out what happens when you don't follow this rule. Per @AdamSchupak, the 1989 Open champion was removed from Augusta National property today for violating the no cellphone policy. pic.twitter.com/TCaeeIeRfX— GOLF.com (@GOLF_com) April 8, 2026 Þegar Golfweek náði sambandi við Calcavecchia vildi hann ekkert tjá sig en hafnaði ekki innihaldi fréttarinnar. „Ég hef ekkert neikvætt að segja um Augusta National golfklúbbinn og Masters, svo ég held að við ættum bókstaflega að leggja á núna,“ hafði miðillinn eftir kylfingnum. Hann spilaði alls 18 sinnum á Masters á árunum 1987 til 2008. Símabannið á Augusta-vellinum gildir fyrir alla, jafnvel fjölmiðlafólk, og á einnig við um fartölvur og spjaldtölvur. Með þessu á að halda í sama andrúmsloft og hefur ríkt á Masters í svo mörg ár. Ríkjandi meistari, Rory McIlroy, og Sam Burns léku best allra á fyrsta degi Masters í gær og eru á -5 höggum. Þeir hafa tveggja högga forskot á Kurt Kitayama, Jason Day og Patrick Reed fyrir hring dagsins. Masters-mótið er í beinni útsendingu á Sýn Sport alla helgina. Útsending frá öðrum keppnisdegi mótsins hefst klukkan 17:00 í dag.
Golf Masters-mótið Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira