E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Sinfóníuhljómsveit Íslands 8. apríl 2026 13:13 E.T. the Extra-Terrestrial frá árinu 1982 er ein af ástsælustu fjölskyldumyndum kvikmyndasögunnar. E.T. verður sýnd við lifandi undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg 9., 10. og 11. apríl í Eldborg, Hörpu. Aðeins þessar þrjá sýningar.
E.T. the Extra-Terrestrial frá árinu 1982 er ein af ástsælustu fjölskyldumyndum kvikmyndasögunnar. Hún segir hjartnæma sögu af vináttu drengsins Elliott og geimverunnar E.T., sem strandar á jörðinni. Myndin heillaði áhorfendur um heim allan með blöndu af húmor og stórum tilfinningum. Töfra myndarinnar má meðal annars rekja til tónlistarinnar, sem samin var af John Williams, einu virtasta kvikmyndatónskáldi allra tíma. Tónlist hans í E.T. er bæði viðkvæm og kraftmikil, og nær að undirstrika tilfinningalega dýpt sögunnar á einstakan hátt. Myndin hlaut fern Óskarsverðlaun, m.a fyrir tónlist Williams. Fyrr á þessu ári var hún valin besta kvikmyndatónlist allra tíma af Classical Music, tónlistartímariti BBC. Á síðari árum hefur myndin öðlast nýtt líf í tónleikasölum víðs vegar um heim, þar sem hún er sýnd á hvíta tjaldinu við lifandi flutning sinfóníuhljómsveitar á tónlist John Williams. Slíkir viðburðir gera áhorfendum kleift að upplifa töfra myndarinnar á enn sterkari hátt, þar sem lifandi flutningur tónlistarinnar dýpkar tengslin við söguna og þær tilfinningarnar sem hún vekur. Lokaatriði myndarinnar er sérstaklega þekkt fyrir áhrifamikla tónlist, þar sem sem reiðhjólin bera við tunglið, er goðsagnakennt augnablik. Williams notar stóran sinfóníuhljóm, ríkulega strengi og sterkar laglínur. Frægt er að Steven Spielberg gaf Williams óvenjulegt frelsi í lokasenunni. Í stað þess að láta tónlistina fylgja klippingu myndarinnar, var myndin að hluta klippt eftir tónlistinni. Þetta er afar sjaldgæft í kvikmyndagerð og sýnir hversu mikilvæg tónlistin var talin fyrir heildaráhrifin. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sinfó stendur fyrir bíótónleikum, áður hefur sveitin leikið undir Harry Potter, Home Alone, Star Wars, Amadeus og fleiri klassískum kvikmyndum við gríðarlegar vinsældir gesta. Upplifðu leyndardómana og gleðina í E.T., þessu ógleymanlega ævintýri sem heillað hefur áhorfendur um allan heim. E.T. verður sýnd við lifandi undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg 9., 10. og 11. apríl í Eldborg, Hörpu. Hægt er að tryggja sér miða á sinfonia.is, harpa.is og tix.is. Aðeins þessar þrjár sýningar. Klippa: ET sýnd við undirleik Sinfó í Hörpu
Kvikmyndahús Tónleikar á Íslandi Menning Harpa Sinfóníuhljómsveit Íslands Mest lesið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Tónlist Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið Fleiri fréttir Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira