Uppgjörið: FH - Haukar 27-21 | Hafnarfjörður er hvítur í bili Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 7. apríl 2026 21:06 FH-ingar tóku fyrsta skrefið í átt að úrslitaeinvígi Olís-deildarinnar í kvöld. FH-ingar eru komnir með 1-0 forystu í undanúrslitaeinvígi Olís-deildar karla eftir gríðarlega sterkan sex marka sigur gegn nágrönnum sínum í Haukum í kvöld, 27-21. Heimamenn í FH skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins, en fljótlega eftir það tók við kafli sem setti heldur betur svip sinn á leikinn. Haukar skoruðu átta mörk gegn aðeins tveimur mörkum FH næstu 14 mínúturnar, sem neyddi Sigurstein Arndal, þjálfara FH, til að taka leikhlé. Óhætt er að segja að leikhléið hafi borið árangur því FH-ingar skoruðu þrjú mörk á tveimur mínútum eftir spjall við þjálfarann og Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, sá ekkert annað í stöðunni en að taka sjálfur leikhlé til að stöðva blæðinguna. Það gekk upp hjá gestunum og það sem eftir lifði hálfleiks var meira jafnræði með liðunum. Munurinn varð aldrei meiri en eitt mark það sem eftir lifði hálfleiks og Haukar leiddu 11-12 þegar hálfleiksflautið gall og liðin gengu til búningsherbergja. Í síðari hálfleik virtist lengi vel ekkert geta skilið liðin að. Munurinn á liðunum fór aldrei yfir eitt mark fyrstu 20 mínútur seinni hálfleiksins, en það voru þó Haukar sem voru skrefinu framar framan af seinni hálfleiknum. Það var ekki fyrr en að um 13 mínútur voru til leiksloka að FH-ingar náðu forystunni í fyrsta skipti síðan í stöðunni 3-2 þegar liðið komst 17-16 yfir. Heimamenn náðu svo tveggja marka forskoti stuttu síðar og munurinn var orðinn þrjú mörk þegar rúmar sex mínútur voru til leiksloka. Þá neyddust Haukar til að taka aðeins meiri sénsa, sem leiddu til þess að FH-ingar stungu af á lokamínútunum. Heimamenn unnu að lokum sex marka sigur, 27-21, og eru því komnir með 1-0 forystu í undanúrslitaeinvíg Olís-deildarinnar. Liðin mætast á nýjan leik næstkomandi föstudag á heimavelli Hauka þar sem þeir rauðklæddu freista þess að jafna metin í einvíginu. Atvik leiksins Einar Örn Sindrason var miðpunktur athyglinnar þegar um tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Hann byrjaði á því að lauma boltanum aftur fyrir sig inn á Ágúst Birgisson á línunni, sem skoraði. Stuttu síðar fór Einar svo sjálfur í gegn og skoraði, en var felldur af Darra Aronssyni í fagnaðarlátunum, með þeim afleiðingum að Darri fékk tveggja mínútna brottvísun. Stjörnur og skúrkar Jón Þórarinn Þorsteinsson, markvörður FH, átti stórleik í marki heimamanna. Hann byrjaði á bekknum, en kom inn á og varði 13 skot fyrir þá hvítklæddu. Endaði með 50 prósent hlutfallsvörslu. Eins og svo oft áður voru það þó Garðar Ingi Sindrason og Ómar Darri Sigurgeirsson sem drógu vagninn sóknarlega fyrir FH og enduðu með sjö mörk hvor. Í liði Hauka var Freyr Aronsson atkvæðamestur með sjö mörk. Þó þurfa nokkrir í liði Hauka að líta sér nær eftir leik kvöldsins. Liðið endaði með 14 tapað bolta og þeir Freyr Aronsson og Skarphéðinn Ívar Einarsson eru skráðir með sjö þeirra. Þá þurfti Skarphéðinn Ívar átta skot til að skora þrjú mörk og veit það manna best að hann getur betur. Dómararnir Þeir Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson þurftu að vinna fyrir kaupinu sínu í kvöld. Hafnarfjarðarslagur í úrslitakeppni er alltaf að fara að vera snúið verkefni fyrir dómara. Auðvitað er hægt að taka út fyrir sviga eitt og annað sem hefði getað verið dæmt öðruvísi, en heilt yfir komust þeir félagar vel frá sínu í kvöld. Stemning og umgjörð Það eru alltaf læti þegar þessi tvö lið mætast, og hvað þá í undanúrslitum Íslandsmótsins. Stemningin í stúkunni var góð og stuðningsmenn beggja liða létu vel í sér heyra frá upphafi til enda. Olís-deild karla FH Haukar
Uppgjörið:Keflavík - Valur 82-87| Valsmenn jafna einvígið og hrifsa til baka heimavöllinn Körfubolti
Uppgjörið:Keflavík - Valur 82-87| Valsmenn jafna einvígið og hrifsa til baka heimavöllinn Körfubolti