Uppgjörið: Haukar - Stjarnan 106-100 | Endurkoma Stjörnunnar dugði ekki til Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 30. mars 2026 18:45 vísir/hulda margrét Deildarmeistararnir í Haukum höfðu betur gegn Stjörnunni 106-100, í fyrstu viðureign liðanna í úrslitakeppninni. Þrátt fyrir magnaðan 40 stiga þriðja leikhluta hjá Stjörnunni tókst liðinu ekki að snúa leiknum sér í vil. Leikurinn fór jafnt af stað og pressuðu Haukar stíft frá fyrstu mínútu. Stjörnukonum tókst þó að mestu að komast í gegnum hana í fyrsta leikhluta. Deildarmeistararnir leiddu með þremur stigum eftir fyrsta leikhlutann, 24-21. Tinna Guðrún Alexandersdóttir átti fínan leik fyrir Hauka.Hulda Margrét Stjarnan gaf ekkert eftir í byrjun annars leikhluta en þegar líða fór á gekk ekkert upp. Sex stig á sjö mínútum á meðan Haukar settu niður 22 stig. Sólrún Inga Gísladóttir kórónaði svo annan leikhluta með snyrtilegri þriggja stiga körfu á lokasekúndunum. Sólrún Inga setti niður mikilvæga þriggja stiga körfu þegar nokkrar sekúndur voru eftir af öðrum leikhluta.Hulda Margrét Þriðji leikhluti var hreint út sagt alveg ótrúlegur. Stjörnukonur komu vel gíraðar úr hálfleiknum og settu niður körfu eftir körfu. Stjarnan vann leikhlutann 40-29 og munaði ellefu stigum á liðunum fyrir fjórða leikhluta og því allt mögulegt fyrir bæði liðin. Diljá Ögn var frábær í liði Stjörnunar.Hulda Margrét Stjörnukonur gáfust ekki upp og börðust alveg til leiksloka. Það dugði þó ekki til en munurinn var sex stig þegar dómarar flautuðu til leiksloka. Haukar því með mikilvægan sigur fyrir næsta einvígi liðanna sem verður 3 apríl næstkomandi. Atvik leiksins Endurkoma Stjörnunar í þriðja leikhluta var frábær. Deildarmeistararnir fengu á sig 40 stig í leikhlutanum og leikurinn galopnaðist fyrir fjórða leikhlutann. Stjörnur og skúrkar Amandine Justine Toi var stigahæst með 28 stig fyrir Hauka, sex fráköst og fjórar stoðsendingar. Tinna Guðrún Alexandersdóttir kom þar næst með 21 stig og Krystal-Jade Freeman með 19 stig. Diljá Ögn Lárusdóttir var stigahæst hjá gestunum með 24 stig og Berglind Katla Hlynsdóttir kom þar næst með 22 stig. Stemning og umgjörð Lífleg stemning þrátt fyrir að stúkan hafi ekki verið full. Þessi meistari hefði getað verið einn í stúkunni og það hefði samt verið læti. Stemningsmaður.Hulda Margrét Dómarar Jóhannes Páll, Ingi Björn og Bjarni Rúnar stóðu vaktina á parketinu í kvöld. Fengu aðeins að heyra það svona eins og gengur og gerist en stóðu sig eins og hetjur. Dómarar kvöldsins ræða saman. Fengu að kíkja tvisvar í skjáinn.Hulda Margrét Bónus-deild kvenna Haukar Stjarnan