X-R slær Borgarlínu verkefnið út af borðinu Linda Jónsdóttir skrifar 25. mars 2026 10:03 Eftir að hafa horft á RÚV kynna oddvita framboða til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík er ljóst að öll eru fylgjandi borgarínu verkefninu, nema einn sem segist vera andsnúinn samgönguhlutanum. Við hjá Okkar Borg erum alfarið á móti verkefninu og hér verða ástæður raktar í stuttu máli. Ástæðurnar Hugsaðu um Breiðholtið (efra, neðra og Seljahverfi) og ímyndaðu þér að þar væri fimmfalt magn af byggingum. Ef þér tekst þetta þá sérðu fyrir þér nýja hverfið á Höfða sem verður byggt næstu árin, í kringum borgarlínu. Eigendum atvinnuhúsnæðis á Höfða hefur gert að rífa hús sín á Ártúnshöfða, bótalaust sem augljóslega er mikið tjón fyrir marga. Ekki nóg með að rífa þurfi húsin, heldur þurfa húseigendur að gera það á eigin kostnað og skila lóðum í upprunalegu ástandi. Hversu galið er þetta og óréttlátt! Höfði, Hallar, Keldur, Kringlureitur, Skeifan, Orkureitur, Vogahverfi o.fl. – alls staðar sama sagan: Margfalt byggingamagn framyfir það sem mannvænlegt getur talist. Það er alveg sama hvaða nýju skrautyrði og lýsingar eru notuð, orð eins og kjarnasamfélag, sjálfbær samfélög, sjónrænar tengingar milli náttúru og byggðar, það breytir ekki raunveruleikanum. Okkur hefur löngu verið gert ljóst að bíllinn er svo til bannvara. Ætlast er til að einn af hverjum fimm íbúðareigendum eigi bíl. Hinir nota borgarlínu. Þeir sem kjósa að eiga og nota bílinn sinn munu síðan borga sérstakan vegaskatt til að niðurgreiða reksturinn á borgarlínunni því fyrirbærið verður svo yfirgengilega dýrt að hvert fargjald þyrfti að vera á pari við far með leigubíl - og ekki einu sinni er víst að það dygði til. Hverjir eiga heiðurinn Fasteignafélög, fjárfestar, lífeyrissjóðir, bankar, embættismenn, stjórnmálamenn, skiptir ekki máli í hvaða röð. Allt þetta í einum hrærigraut stendur að þessu. Enginn oddviti boðar neitt gegn þessu og augljóslega eru einhver þeirra beintengd við grautinn – enda þurfa þau salt í hann. Okkar Borg Við í framboðinu Okkar Borg ætlum slá borgarlínuverkefnið út af borðinu. Það þýðir ekki að við séum á móti nýjum hverfum eða góðum almenningssamgöngum en róum okkur aðeins í gleðinni. Talsmenn borgarlínu segja mjög gjarnan að svona séu borgir um allan heim. Við skulum ekki gleyma að þær borgir eru alltaf í löndum sem telja milljónir manna, jafnvel tugi eða hundruði milljóna manna. Við, 400.000 manna þjóð á norðurhjara höfum ekkert að gera með að bera okkur saman við slíkt. Burt með borgarlínu – höfum frítt í strætó og spörum tugi milljarða árlega. Burt með þetta yfirgengilega byggingamagn svo skapa megi ofurgróða ofantalinna aðila – byggjum hverfi fyrir fólk en ekki hænsnabú eins og góður maður sagði. Einhvers staðar á leiðinni virðist hafa gleymst að borgaryfirvöld eru ekki ráðin til að koma svona fram við borgarbúa – fólkið sem borgar brúsann og situr uppi með afleiðingarnar af þessu gerræði. Setjum X við Reykjavík – setjum X við Okkar Borg þann 16. maí 2026. Við munum berjast fyrir almenning. Höfundur skipar 12. sæti hjá X-R Okkar Borg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar