Fá þrjátíu aukamilljónir til að fylgjast með dagvörumarkaði Árni Sæberg skrifar 23. mars 2026 15:06 Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Vísir/Arnar Atvinnuvegaráðherra hefur ákveðið að veita Samkeppniseftirlitinu 30 milljóna króna viðbótarframlag til að vinna að áherslum stjórnar um virka samkeppni á dagvörumörkuðum. Samkvæmt fjárlögum ársins fær Samkeppniseftirlitið 690 milljónir króna úr ríkissjóði.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að á síðustu árum hafi orðið ýmsar breytingar á dagvörumarkaði og þeim fyrirtækjum sem annast sölu, framleiðslu og innflutning á dagvöru. Dagvöruverð hér sé með því hæsta sem þekkist í Evrópu og kaup á dagvöru séu einn af stærstu kostnaðarliðum heimila og þar af leiðandi stór þáttur í þróun verðbólgu. Af þessum sökum sé mikilvægt að samkeppnisaðstæður á dagvörumörkuðum, og tengdum mörkuðum sem hafa áhrif á dagvöruverð, sæti skoðun. Framangreind ráðstöfun sé hluti af almennri viðleitni stjórnvalda til að ná niður verðbólgu og samræmist áherslum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um mikilvægi virkrar samkeppni og öfluga neytendavernd.„Það er mikilvægt að Samkeppniseftirlitið hafi bolmagn til að fylgja eftir áherslum stjórnar eftirlitsins. Í þeim áherslum er sérstaklega fjallað um mikilvægi samkeppni á dagvörumörkuðum, m.a. flutningamarkaði og eldsneytismarkaði. Er þetta mikilvægur liður í aðgerðum stjórnvalda til að ná niður verðbólgu og til að efla virka samkeppni og neytendavernd,“ er haft eftir Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samkeppnismál Verslun Matvöruverslun Rekstur hins opinbera Mest lesið Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Viðskipti innlent Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Jóhanna tekur við sem forstjóri Viðskipti innlent Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Neytendur Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Sjá meira