Lausnir vegna lélegra loftgæða í Reykjavík Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar 21. mars 2026 08:30 Í vetur hafa loftgæði í borginni verið óvenju slæm. Þessar aðstæður hafa ýmsar afleiðingar sem borgarbúar á öllum aldri hafa orðið varir við. Skýringarnar á þessu ástandi eru í raun margþættar. Þær felast í samspili óvenjulegs veðurfars, mikillar umferðar og nagladekkjanotkunar - auk takmarkaðra úrræða þegar aðstæður eru hvað erfiðastar. Rok og rigning óskast Veðurfar skiptir miklu máli þegar kemur að loftgæðum í borginni. Langvarandi þurrkur, lágur loftraki og hægur vindur eru verstu hugsanlegu aðstæður þegar kemur að svifryksmengun. Einmitt þessar aðstæður voru ríkjandi stóran hluta vetrarins. Eftir fyrsta snjó í október var nær enginn snjór, hæglætisveður algengt og úrkoma með minnsta móti. Lægðir sem venjulega bleyta götur og hreinsa loftið náðu ekki til landsins og rykið safnaðist því upp á yfirborði gatna. Það er þess vegna svolítið kaldhæðnislegt að rok og rigning sé það veðurástand sem stuðlar að hvað bestum loftgæðum á höfuðborgarsvæðinu. En rok og rigning svona almennt, eru varla efst á óskalista flestra borgarbúa sem ríkjandi veðurfar til lengri tíma. Rykbinding og þurrhreinsun Þegar götur eru þurrar og umferð mikil losnar þetta ryk auðveldlega út í andrúmsloftið. Í slíkum aðstæðum er jafnan gripið til rykbindingar með magnesíumklóríði. Í vetur kláraðist slíkt efni hins vegar vegna óvenju mikillar notkunar og skorts hjá birgjum. Þótt bæði Reykjavíkurborg og Vegagerðin hefðu pantað meira efni urðu tafir á afhendingu þar sem m.a. skip seinkaði. Þá var frost stóran hluta tímans, sem gerði bleytingu gatna ómögulega. Eftir stóð þurrhreinsun, sem ein og sér er ekki lausn til lengri tíma - hún nær aðeins upp grófasta rykinu á meðan fína rykið smýgur aftur út í andrúmsloftið og mengar jafnvel enn meira en ella. Sameiginleg ábyrgð sveitarfélaga og ríkisins Ábyrgð á loftgæðum liggur þó ekki eingöngu hjá Reykjavíkurborg. Hún hvílir hjá öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu ásamt ríkinu. Þessir aðilar þurfa að vinna sameiginlega að heildstæðum lausnum til lengri tíma. Það þarf m.a. að draga úr notkun nagladekkja, finna leiðir til þess að geta jafnvel lækkað hámarkshraða þegar loftgæði eru hvað verst – til dæmis með stafrænum, miðlægt stýrðum hraðaskiltum. Einnig skiptir betra umferðarflæði í borginni miklu máli. Til lengri tíma þarf að bæta alla samgönguinnviði höfuðborgarsvæðisins. Í stað gönguþverana yfir umferðarþungar götur, þarf að byggja brýr eða göng. Þegar langar bílaraðir eru sífellt að stoppa og taka af stað á annatímum, eykst mengun til muna eins og flestir vita. Það er til margra þátta að líta þegar kemur að bættum loftgæðum í borginni - og margt getur tekið tíma. Það er því fátt annað en rykbinding sem hægt er að framkvæma “með hraði” þegar aðstæður eru hvað verstar - eins og á þeim “allt of mörgu” góðviðrisdögum sem verið hafa í Reykjavík sem af er vetrar. En rykbinding ein og sér dugir skammt - það þarf einfaldlega meira til. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Flokks fólksins og situr m.a. í heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Sveinbjörn Guðmundsson Flokkur fólksins Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aukinn stuðningur við leigjendur í Reykjavík Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira