Upp­gjörið: Ís­land - Sví­þjóð 33-35 | Appelgren gerði út­slagið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elliði Snær Viðarsson var markahæstur í íslenska liðinu í kvöld með sjö mörk.
Elliði Snær Viðarsson var markahæstur í íslenska liðinu í kvöld með sjö mörk. vísir/anton

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með tveggja marka mun fyrir Svíþjóð, 33-35, á Hlíðarenda í fyrri vináttulandsleik þjóðanna af tveimur.

Staðan í hálfleik var jöfn, 19-19. Mikael Appelgren kom inn á í sænska markið í seinni hálfleik og hann gerði gæfumuninn fyrir gestina. Hann varði tólf skot, eða 46 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig. Alls vörðu þeir Fabian Norsten samtals tuttugu skot en íslensku markverðirnir tíu.

Elliði Snær Viðarsson var markahæstur í íslenska liðinu með sjö mörk. Orri Freyr Þorkelsson skoraði sex mörk og Viggó Kristjánsson fimm, öll úr vítaköstum.

Íslensku leikmennirnir þakka fyrir stuðninginn eftir leik.vísir/anton

Fátt, eða nánast ekkert, var um varnir í fyrri hálfleik þar sem 38 mörk voru skoruð. Liðin deildu þeim jafnt á milli sín, 19-19.

Svíar voru með frumkvæðið framan af leik og komust í tvígang þremur mörkum yfir.

En eftir að Lukas Sandell kom Svíþjóð 10-13 kom góður kafli hjá Íslandi sem skoraði þrjú mörk í röð og komst svo tveimur mörkum yfir, 16-14. Íslendingar höfðu þá skorað sex mörk gegn einu og Michael Apelgren, þjálfari Svía, fann sig knúinn til að taka leikhlé.

Svíþjóð skoraði þrjú af næstu fjórum mörkum og jafnaði í 17-17. Staðan í hálfleik var svo 19-19 en Viggó klikkaði á sínu fyrsta víti undir lok fyrri hálfleiks eftir að hafa skorað úr fyrstu fimm vítunum sínum. Elliði skoraði sömuleiðis fimm mörk í fyrri hálfleik en línuspil Íslands var mjög skilvirkt í kvöld.

Gísli Þorgeir Kristjánsson lét að vanda mikið að sér kveða.vísir/anton

Vörnin var hins vegar afar götótt og markvarslan takmörkuð. Björgvin Páll Gústavsson lék fyrri hálfleikinn og varði fjögur skot (sautján prósent). Á meðan varði Norsten átta skot í sænska markinu (31 prósent).

Appelgren byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og varði þrjú fyrstu skotin sem hann fékk á sig. Viktor Gísli Hallgrímsson, sem kom einnig inn á í hálfleik, byrjaði ágætlega en svo fjaraði undan honum.

Gísli Þorgeir Kristjánsson kom Íslandi yfir, 24-23, þegar sautján mínútur voru eftir. Það var í síðasta sinn sem íslenska liðið leiddi í leiknum.

Teitur Örn Einarsson heldur Mottumarsinn heilagan.vísir/anton

Sóknir íslenska liðsins urðu þyngri eftir því sem leið á seinni hálfleikinn og það þurfti að hafa mun meira fyrir sínum mörkum en það sænska.

Svíar breyttu stöðunni úr 27-28 í 28-32 og öll von virtist úti fyrir Íslendinga.

Þeir gáfust þó ekki upp, fóru framar í vörninni og mörk frá Sigvalda Guðjónssyni og Stiven Tobar Valencia, sem léku í hornunum í seinni hálfleik, hleyptu mikilli spennu í leikinn. 

En eins og svo oft áður þegar íslenska liðið þurfti að fá stopp í vörninni varð ekkert af því. Axel Månsson, sem átti mjög góðan leik, kom Svíþjóð tveimur mörkum yfir, 32-34, og í kjölfarið skaut Þorsteinn Leó Gunnarsson yfir úr dauðafæri. Mosfellingurinn átti erfitt uppdráttar í leiknum og fjögur af fimm skotum hans geiguðu.

Stiven Tobar Valencia skoraði tvö mörk í seinni hálfleik.vísir/anton

Isak Persson kláraði leikinn endanlega með marki úr hægra horninu en Elliði lagaði stöðuna í 33-35 með síðasta marki leiksins.

Vörn Íslands var lengst af hriplek og Svíþjóð skoraði að vild og skotnýting sænska liðsins var 78 prósent. Hún var 65 prósent hjá því íslenska en munurinn á markvörslunni var mikill eins og áður sagði.

Sóknarleikurinn var á löngum köflum góður þótt of mörg færi hafi farið í súginn. Línuspilið var þó gott; línumennirnir Elliði og Arnar Freyr Arnarsson skoruðu samtals átta mörk og fiskuðu slatta af vítaköstum.

Betur má samt ef duga skal þegar Ísland og Svíþjóð mætast aftur í Kaplakrika á laugardaginn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira