Skrifuðu undir samkomulag um varnarsamstarf við ESB Kjartan Kjartansson skrifar 18. mars 2026 14:20 Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, handsala samkomulagið í Brussel í dag. Bluesky-síða Kaju Kallas Utanríkisráðherra skrifaði undir samkomulag um samstarf við Evrópusambandið í öryggis- og varnarmálum í Brussel í dag. Samkomulagið er sagt styrkja samstarfið hvað varðar Úkraínu, norðurslóðir, netöryggi og fleira.
Samstarf Íslands og ESB á sviði öryggis- og varnarmála er sagt færast upp á hærra stig með samkomulaginu í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra. Það styrki öryggi og auki hagsæld beggja aðila. Yfirlýsingin hefur enn ekki verið birt á vef stjórnarráðsins. Í samkomulaginu felist rammi utan um samstarfið og styrki það, meðal annars hvað varðar stuðninginn við Úkraínu, málefni norðurslóða og öryggi sjófarenda, netöryggi, tækniógnir, efnahagslegt öryggi og loftslagsbreytingar. Í samstarfinu felst meðal annars að haldinn verði árlegur samráðsfundur íslenskra stjórnvalda og ESB um öryggismál. „Evrópusambandið og Ísland eru nánir vinir. Við deilum bæði áskorunum og öryggi,“ skrifar Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins á samfélagsmiðla. Kallas og Þorgerður Katrín með samkomulagið undirritað.Kaja Kallas Samkomulagið dýpki samstarfið á svæðum sem skipti máli fyrir öryggi evrópskra og íslenskra borgara. „Þetta er sigur bæði fyrir Evrópusambandið og Ísland.“ Evrópuríki hafa lagt aukna áherslu á öryggis- og varnarmál og samstarf á því sviði síðasta árið. Sú þróun hefur ekki síst verið drifin áfram af versnandi samskiptum Evrópu og Bandaríkjanna í kjölfar stjórnarskipta vestanhafs í byrjun síðasta árs. Ekki aðeins hefur Bandaríkjastjórn oft verið á öndverðum meiði við evrópska ráðamenn um Úkraínu heldur hefur Trump-stjórnin gert Evrópumönnum morgunljóst að varnir Evrópu og Atlantshafsbandalagið sé ekki lengur í forgangi hjá henni. Íslensk stjórnvöld hafa aukið framlög sín til öryggis- og varnarmála og lýst yfir vilja til þess að leggja meira fram til Atlantshafsbandalagsins. Þá tilkynnti ríkisstjórnin fyrr í þessum mánuði að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort aðildarviðræður við ESB skyldu teknar upp að nýju. Fréttin hefur verið uppfærð.
Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið NATO Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Sjá meira