Svíar lækka matarskatt – Norðmenn ræða – en hvað með Ísland? Erna Bjarnadóttir skrifar 18. mars 2026 10:46 Verðbólgan leikur fleiri grátt en íslenska neytendur um þessar mundir. Í sumum nágrannalanda okkar hefur þegar verið gripið til aðgerða eða umræða um þær í gangi. Í Svíþjóð hefur verið ákveðið að lækka virðisaukaskatt á matvörur úr 12% í 6% tímabundið, frá 1. apríl og út árið 2027. Samhliða hafa eldsneytisgjöld verið lækkuð, sem styrkir kaupmátt neytenda og samkeppnisstöðu landsins. Svíar reikna með að áhrifin komi fljótt fram í verslun þegar neytendur í nágrannalöndum beina innkaupum sínum til landsins. Í Noregi er sambærileg umræða komin á dagskrá. Verðbólga síðustu ára þar í landi hefur einkum verið drifin áfram af kostnaðarhækkunum – orkukostnaði, flutningum og truflunum í aðfangakeðjum – fremur en mikilli eftirspurn. Þessi þróun hefur varað frá heimsfaraldrinum og hélt áfram í kjölfar stríðsins í Úkraínu. Nú síðast hafa átökin við Persaflóa hækkað orku- og flutningskostnað. Norðmenn ræða því nú í alvöru hvort tímabundin lækkun virðisaukaskatts á nauðsynjavörum geti bæði létt undir með heimilum og dregið úr verðbólguþrýstingi. Slík aðgerð beinist sérstaklega að þeim sem verja stærstum hluta tekna sinna í mat og getur jafnframt lækkað kostnað í opinberri þjónustu, svo sem í heilbrigðis- og menntakerfinu. Hér á landi búum við hins vegar við gjaldhækkanir hins opinbera sem haldið er til streitu, þrátt fyrir að verðbólgan sé enn að stórum hluta kostnaðardrifin og knúin áfram af ytri aðstæðum sem áður eru nefndar. Þegar horft er til aðgerða Svía og umræðunnar í Noregi vaknar sú augljósa spurning hvort skattalækkanir á nauðsynjum séu ekki markvissari leið einnig hér á landi til að bregðast við verðbólgu fremur en auknar álögur á heimili og fyrirtæki. Á meðan nágrannalönd okkar ræða eða grípa til aðgerða sem miða að því að lækka vöruverð, er hér farin gagnstæð leið með hækkun skatta, meðal annars á akstur og bifreiðar, sem óhjákvæmilega leggjast á verðlag. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Efnahagsmál Verðlag Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Sjá meira
Verðbólgan leikur fleiri grátt en íslenska neytendur um þessar mundir. Í sumum nágrannalanda okkar hefur þegar verið gripið til aðgerða eða umræða um þær í gangi. Í Svíþjóð hefur verið ákveðið að lækka virðisaukaskatt á matvörur úr 12% í 6% tímabundið, frá 1. apríl og út árið 2027. Samhliða hafa eldsneytisgjöld verið lækkuð, sem styrkir kaupmátt neytenda og samkeppnisstöðu landsins. Svíar reikna með að áhrifin komi fljótt fram í verslun þegar neytendur í nágrannalöndum beina innkaupum sínum til landsins. Í Noregi er sambærileg umræða komin á dagskrá. Verðbólga síðustu ára þar í landi hefur einkum verið drifin áfram af kostnaðarhækkunum – orkukostnaði, flutningum og truflunum í aðfangakeðjum – fremur en mikilli eftirspurn. Þessi þróun hefur varað frá heimsfaraldrinum og hélt áfram í kjölfar stríðsins í Úkraínu. Nú síðast hafa átökin við Persaflóa hækkað orku- og flutningskostnað. Norðmenn ræða því nú í alvöru hvort tímabundin lækkun virðisaukaskatts á nauðsynjavörum geti bæði létt undir með heimilum og dregið úr verðbólguþrýstingi. Slík aðgerð beinist sérstaklega að þeim sem verja stærstum hluta tekna sinna í mat og getur jafnframt lækkað kostnað í opinberri þjónustu, svo sem í heilbrigðis- og menntakerfinu. Hér á landi búum við hins vegar við gjaldhækkanir hins opinbera sem haldið er til streitu, þrátt fyrir að verðbólgan sé enn að stórum hluta kostnaðardrifin og knúin áfram af ytri aðstæðum sem áður eru nefndar. Þegar horft er til aðgerða Svía og umræðunnar í Noregi vaknar sú augljósa spurning hvort skattalækkanir á nauðsynjum séu ekki markvissari leið einnig hér á landi til að bregðast við verðbólgu fremur en auknar álögur á heimili og fyrirtæki. Á meðan nágrannalönd okkar ræða eða grípa til aðgerða sem miða að því að lækka vöruverð, er hér farin gagnstæð leið með hækkun skatta, meðal annars á akstur og bifreiðar, sem óhjákvæmilega leggjast á verðlag. Höfundur er hagfræðingur.
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar